Ferðaviðvörun til Mexíkóborgar aflétt 15. maí 2009 13:54 Tamiflu lyfið er talið gagnast gegn inflúensu A veirunni.
Viðbúnaðarstig vegna inflúensu A, sem áður var kölluð svínaflensan, er óbreytt hér á landi frá því sem verið hefur vegna þess að inflúensan hefur breiðst út til margra landa. Hins vegar er faraldurinn í Mexíkó í rénun og því hefur verið ákveðið, af heilbrigðisyfirvöldum hér á landi, að aflétta viðvörun til ferðamanna um að ferðast ekki til Mexíkó að nauðsynjalausu. Enn sem komið er hefur veiran ekki greinst hér á landi og enginn lagst inn á Landspítala með alvarleg inflúensulík einkenni. Engin viðvörun er nú í gildi um ferðalög til annarra landa. Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra hvetur ferðamenn til að gæta fyllsta hreinlætis á ferðum sínum erlendis, forðast náið samneyti við veika einstaklinga, þvo sér oft um hendur og/eða nota handspritt. Þar sem óvíst er að notkun almennings á andlitsgrímum dragi úr líkum á smiti er ekki hvatt til notkunar þeirra. Notkun heilbrigðisstarfmanna á andlitsgrímum, og grímunotkun sjúklinga með inflúensulík einkenni, getur hins vegar dregið úr smithættu. Þar sem sýking af völdum inflúensunnar virðist vera væg, er ekki sérstök ástæða til að reyna að hefta komu hennar til Íslands. Því hefur verið ákveðið að draga úr vaktþjónustu í Leifsstöð. Frá og með deginum í dag, 15. maí 2009, verða heilbrigðisstarfsmenn einungis á bakvakt fyrir Leifsstöð en vaktþjónustu í stöðinni verður hægt að endurvekja með stuttum fyrirvara ef þörf krefur.
Mest lesið Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Erlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Innlent Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Innlent Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Innlent Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Innlent Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Innlent Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Innlent Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Innlent Fleiri fréttir Björguðu húsi frá því að verða eldi að bráð Flugmenn gleyma því að þeir séu í flughermi Einn fluttur á slysadeild eftir mótorhjólaslys Þarf að greiða hálfa milljón úr eigin vasa vegna B5 Fær 5,7 milljónir af því að kona var ráðin en ekki hann Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Prince setti svip sinn á tveggja milljóna verk Nýtti sér dauðvona mann i auglýsingaskyni Dramatík í Hafnarfirði Mikil leynd ríkir yfir smáatriðunum Vilhjálmur verður bæjarstjóri „Ég er ekki nógu góður í slíkri skák“ Skraf Sjálfstæðismanna í húsi Snarfara Gabríel Douane fær tólf mánuði til: „Fjarstæðukennt“ að hann hafi óvart tekið símann Ráða verkefnisstjóra í málum Grindavíkur Hyggjast halda samstarfinu áfram Viðreisn líst hvorki á Framsókn né Miðflokk Kristinn verður áfram bæjarstjóri Valdimar hafnar alfarið fullyrðingum um trúnaðarbrest Ekkjan fór með fullnaðarsigur af hólmi í héraði Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Berglind verður bæjarstjóri og Óðinn formaður bæjarráðs Inga skipar nýjan skólameistara Borgarholtsskóla Hræðileg umgengni á golfvellinum í Hveragerði Samfylking útilokar Framsókn: „Búið að brjóta það traust áður en það byrjaði“ Tíðindi í vændum: Boðar borgarstjórnarflokkinn á fund Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði slíta meirihlutaviðræðum Ísland dýrast í heimi og nýr meirihluti kynntur fyrir norðan Ísland sé orðið dýrasta land í heimi „Getum við þá hætt að tala um rafvarnarvopn?“ Sjá meira