Ný Polanski-mynd í biðstöðu 1. október 2009 05:00 Fær mikinn stuðning. Stuðningur stjórnmálamanna og annarra leikstjóra við Roman Polanski þykir vera á nokkuð gráu svæði enda nauðgaði hann þrettán ára gamalli stúlku.
Nýjasta verk leikstjórans Romans Polanski hefur verið sett í salt um óákveðinn tíma. Um er að ræða kvikmyndina The Ghost með þeim Ewan McGregor og Pierce Brosnan í aðalhlutverkum. Tökum á myndinni er lokið og klipping er á lokastigi en enn á eftir að fullvinna hana. Myndin segir frá svokölluðum „skuggarithöfundi" sem er falið að skrifa ævisögu bresks forsætisráðherra og kemst um leið að fjölskylduleyndarmáli sem setur líf hans í uppnám. Polanski á heldur erfitt með að fylgjast með eftirvinnslu myndarinnar þar sem hann situr nú í varðhaldi svissnesku lögreglunnar og bíður þess að vera framseldur til Bandaríkjanna fyrir brot sem hann framdi fyrir þrjátíu árum. Polanski var handtekinn fremur óvænt af svissneskum yfirvöldum en leikstjórinn hefur alla tíð gætt þess að ferðast ekki til landa þar sem handtaka yfir honum væri yfirvofandi. Polanski nauðgaði þrettán ára gamalli stúlku á heimili Jacks Nicholson þegar hann var að mynda hana fyrir Vogue-tímaritið. Hann flúði land og hefur síðan að mestu dvalist í París ásamt eiginkonu sinni. Fjöldi leikstjóra hefur hvatt til þess að Polanski verði látinn laus og franskir stjórnmálamenn hafa biðlað til þeirra svissnesku um að Polanski verði leyft að snúa aftur til síns heima. Svissneskir fjölmiðlar hafa jafnframt verið harðorðir í garð þarlendra yfirvalda og segjast hálfpartinn skammast sín fyrir að vera svissneskir.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Sjá meira