Lán lengjast mest um þrjú ár 1. október 2009 04:45 Úrræðin ná bæði til húsnæðis- og bílalána og stefnt er að því að þau taki gildi 1. nóvember.Fréttablaðið/vilhelm
Greiðslubyrði af öllum íbúða- og bílalánum mun léttast um næstu mánaðamót. Aðgerðir í þá veru voru kynntar í félagsmálaráðuneytinu í gær. Greiðslubyrðin verður færð aftur til þess sem hún var á tilteknum dagsetningum á síðasta ári. Verðtryggð lán munu miðast við 1. janúar 2008 og gengistryggð lán við 1. maí 2008. Það sem út af stendur af afborgununum bætist við höfuðstólinn og þar með lengist lánstíminn. Þak verður hins vegar sett á lánstímann, þannig að hann lengist ekki meira en um þrjú ár. Til stendur að afskrifa afganginn og að lánastofnanirnar beri þann kostnað. Greiðslubyrðin mun síðan þyngjast á ný í samræmi við launavísitölu og aukið atvinnustig. Þessi úrræði verða valkvæm, sem þýðir að þeir sem treysta sér til að greiða af láninu eins og upphaflega var gert ráð fyrir, og vilja ekki lengja lánstímann, geta gert það áfram. Ekki liggur enn fyrir hvort fólk mun sérstaklega þurfa að bera sig eftir úrræðinu, eða hvort það mun þurfa að segja sig frá því. Þá verður einnig boðið upp á sértæk úrræði fyrir fólk í verulegum greiðsluvanda. Annars vegar er þar um að ræða úrræði sem kallað er greiðslujöfnun plús, og kemur til viðbótar hinni hefðbundnu greiðslujöfnun sem lögfest var fyrir tæpu ári. Þar verður tekið mið af stöðu hvers og eins og greiðslubyrðin sniðin að hans þörfum. Hins vegar munu lánastofnanir bjóða upp á sértæka skuldaaðlögun, sem byggist á mati á greiðslugetu til lengri tíma og er ætluð fólki sem ekki dugir almenn leiðrétting. Þar að auki verður opinber greiðsluaðlögun endurbætt með nýju lagafrumvarpi og vankantar sniðnir af frumvarpinu. Árni Páll sagði einnig á blaðamannafundinum í gær að til stæði að breyta lögum um Íbúðalánasjóð, meðal annars til að forðast fasteignabólur. Ráðherranefnd félagsmála-, dómsmála- og viðskiptaráðherra ræddi í þaula þá hugmynd að færa öll íbúðalán til Íbúðalánasjóðs til að auðvelda það að bjóða upp á samræmd úrræði. Af því varð hins vegar ekki. Spurður hvað olli því sagði Árni Páll að lendingin hefði einfaldlega orðið sú að fara aðra leið í bili. „Bankarnir vildu vinna þetta með þessum hætti,“ sagði Árni. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur sú leið þó ekki enn verið slegin alfarið út af borðinu. stigur@frettabladid.is
Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Fleiri fréttir Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Maríjon aðstoðar þingmenn Sjálfstæðisflokksins Lítið jökulhlaup hafið í Múlakvísl Loka Hagaborg í það minnsta í tvö ár Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Hin hliðin ljúgi að landsmönnum „Salami-aðferðin“ geri það erfitt að hætta við Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið birtir útreikningana Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Sjá meira