Hjaltalín í jólaplötuflóðinu 1. október 2009 06:15 Handahófskennd tívolístemning. Högni Egilsson á sviði með Hjaltalín. „
Við tökum þátt í flóðinu og komum með nýju plötuna okkar í nóvember,“ segir Högni Egilsson, aðalsprauta hljómsveitarinnar Hjaltalín. Eitthvað var á huldu hvort sveitin myndi fylgja plötunni Sleepdrunk Seasons eftir í ár, en sú plata kom út í desember 2007 og vakti mikla athygli á þessari fjölmennu gæðasveit. Í fyrra kom svo „Þú komst við hjartað á mér“ Hjaltalín endanlega á kortið og því má gera því skóna að mikil spenna sé fyrir nýju plötunni. Hún er nafnlaus enn sem komið er, en lögin „Suitcase Man“ og „Stay by You“ hafa þegar heyrst af henni. „Suitcase Man verður í gjörbreyttri útgáfu á plötunni, talsvert stærri útgáfu,“ segir Högni. „Ég get sagt um þessa plötu að hún fer í margar áttir og er mjög fjölbreytt. Það er allt látið flakka og það er handahófskennd tívolístemning á henni. Það er samt eitthvert bindiefni sem heldur öllu saman.“ Högni segir að vinkona bandsins úr listaháskólanum, Regína María, sé að vinna umslagið í þessum töluðu orðum og styttist í að platan verði tilbúin: „Við erum bara að ljúka upptökum núna. Svo förum við í smá túr en Kiddi og Siggi (úr Hjálmum) klára mixin í Hljóðrita á meðan. Þegar við komum heim ætti platan að vera svo til tilbúin.“ Hjaltalín hefur spilað víða í Evrópu síðustu misserin. Túrinn sem bandið fer á nú í vikunni samanstendur af sex tónleikum í Þýskalandi og einum á festivali í Búdapest þar sem íslenska hljómsveitin Ourlives kemur líka fram, auk Emilíönu Torrini og Lay Low.- drg
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira