Frikki býður Barack Obama í mat 1. október 2009 07:30 Friðrik Weisshappel hyggst birta boðskortið í heilsíðuauglýsingu í Politiken. Þar kemur fram að Barack Obama og eiginkonu hans sé boðið í hamborgara. Geti þau ekki mætt núna þá eigi þau það inni þegar þau mæta á loftslagsráðstefnuna í desember.
Fyrirmenni heimsins eru tekin að safnast saman í Kaupmannahöfn þar sem Alþjóðaólympíunefndin situr á rökstólum og skeggræðir hvaða borg fær að halda Ólympíuleikana 2016. Íslenskur veitingamaður í borginni hefur boðið forseta Bandaríkjanna í hamborgara af því tilefni. „Ég reikna ekki með að gera þetta aftur þótt auðvitað eigi maður aldrei að segja aldrei," segir Friðrik Weisshappel, eigandi kaffihússins Laundromat við Arhusgade í Kaupmannahöfn. Hann, líkt og danska þjóðin, er ákaflega spenntur fyrir komu Baracks Obama, forseta Bandaríkjanna. Friðrik hefur ákveðið að bjóða honum og eiginkonu hans, Michelle, í hamborgara enda sé Barack búinn að lýsa því yfir að hann sé mikill aðdáandi þess vinsæla réttar. Til þess að skötuhjúin sjái nú örugglega boðskortið frá Friðriki hafa starfsmenn Laundromat hengt boðskortið upp um alla borg og loks ætlar Friðrik að birta heilsíðuauglýsingu í stórblaðinu Politiken á föstudaginn þegar Barack mætir á svæðið. „Það er góður íslenskur siður að bjóða fólki sem maður kann vel við í mat og ég kann bara ákaflega vel við þau hjónin," segir Friðrik sem hefur fengið mikil viðbrögð við þessu uppátæki sínu frá íbúum Kaupmannahafnar. Friðrik segir kostnað við heilsíðuauglýsingu í Politiken vera töluverðan og kannski ekki alveg í takt við kreppuna. Hann hafi þó náð að prútta verðið aðeins niður. „Þetta er bara svona „once in a lifetime"-dæmi og ef þetta fær fólk til að brosa og hlæja þá er tilganginum náð," útskýrir Friðrik. Hann bætir því við að hann sé ekkert sérstaklega vongóður um að forsetinn mæti í matinn en hann liggi þó á bæn. „Ef hann getur ekki mætt núna þá stendur honum til boða að mæta í desember þegar loftslagsráðstefnan verður haldin hérna." freyrgigja@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Sjá meira