Sveppi og Auddi klæddir upp að hætti Haffa Haff 1. október 2009 07:30 Óvenjulegir Auðunn er í bleikum kjól en Sverrir í bol sem kallar fram hárlit hans; Auðunn gæti eflaust ekki farið á Óliver í þessum fötum en Sverrir myndi hiklaust slá í gegn á einhverjum börum borgarinnar í þessari múnderingu.
Ólátabelgirnir Sverrir Þór og Auðunn Blöndal eru óhræddir við að prófa nýja hluti. Þeir hafa meðal annars klætt sig upp sem rónar og verið hótað lífláti. Auðunn segir ekkert hafa toppað Haffa Haff. „Þetta var öðruvísi og það er vægt til orða tekið," segir Auðunn í samtali við Fréttablaðið en tónlistarmaðurinn Haffi Haff tók sig til og sýndi þeim félögum hvernig ætti að klæða sig að hætti „hippogkúl"-liðsins í nýjasta þætti tvíeykisins. Auðunn vill ekki meina að Haffi hafi fundið dulda og kvenlega hlið á sér þrátt fyrir að hafa verið klæddur upp í bleikan kjól en hvað Sveppa varðar er Auðunn ekki alveg jafn viss. „Það er meiri svona tilhneiging hjá honum; hann virðist alltaf vera tilbúinn í eitthvað svona," segir Auðunn og er skemmst að minnast þess að Sveppi tók Auðuni opnum örmum þegar þeir félagar föðmuðust án nokkurra klæða en Auðunn virtist þá vera eitthvað tvístígandi. Óhætt er að segja að þeir félagar líti ljómandi vel út á myndunum og var jafnvel haft á orði að Sverrir Þór gæti jafnvel klæðst þeirri múnderingu dags daglega sem Haffi Haff valdi á hann; „Þetta er sennilega eitt fáránlegasta atriði sem ég hef verið í," segir Auðunn. „Að vera þarna í Listasafni Reykjavíkur ásamt Haffa og vini hans, Steina, sem sagði ekkert nema „átta" allan tímann og stóð nánast eingöngu úti í horni allan tímann. Mér leið eins og ég væri fastur í atriði úr A Clockwork Orange eftir Stanley Kubrick." freyrgigja@frettabladid.is Lady Gaga-stíll Haffi og vinur hans Steini voru reffilegir þegar þeir tóku Sveppa og Audda í gegn. Stílinn sem Haffi virðist hafa valið minnir nokkuð á Lady Gaga, sem mætti einmitt á einhverja athöfn í svipuðum klæðum með tebolla í hægri. öðruvísi Auðunn lýsir tímanum með Haffa sem öðruvísi; hann hafi hreinlega aldrei lent í öðrum eins aðstæðum. Glæsilegir Þessi föt klæða þá félaga ákaflega vel og ljóst að Haffi gerði kraftaverk fyrir tískuvitund Audda og Sveppa.
Mest lesið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ Lífið „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ Lífið Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið Lífið Íslenskur förðunarfræðingur í nýrri herferð Kardashian Tíska og hönnun Severance sópar að sér Emmy-tilnefningum Bíó og sjónvarp „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Lífið „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Lífið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Lífið Er Rihanna best klædda mamma allra tíma? Tíska og hönnun Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar Lífið Fleiri fréttir Sjarmerandi raðhús í 105 Sögufrægur gítar Stones fannst hálfri öld eftir að honum var stolið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Óútgefinni tónlist Beyoncé stolið úr bíl danshöfundar „Þú stýrir þínum rokkstjörnulífsstíl“ „Yndislegir vinir gáfu okkur saman í plötubúð“ Sögulegt sveitaball í hundrað ár Boxari selur íbúð með heitum potti og Esju útsýni Telur að 511 kílómetra hlaupið styrki hlauparann „Kókaín hefur tekið mig aftur og aftur til helvítis“ Ómissandi gönguleiðir sem þú verður að prófa Stjörnulífið: „Engar áhyggjur við erum ekki skilin“ Riddarar kærleikans í hringferð um landið Endaði á geðdeild eftir notkun MDMA í sálfræðimeðferð Reykvíkingur ársins tileinkar samstarfsfólki útnefninguna Nágrannar kveðja sjónvarpsskjáinn „Það verður erfitt að trúa því að lífið muni einhvern tímann leiða eitthvað gott af sér” Krakkatían: Narnía, krónprins og sundlaugar Klay Thompson og Megan Thee Stallion nýtt par Börnin læra að sauma út, baka og elda í Hússtjórnarskólanum „Auðvitað væri ég til í að ná enn lengra“ Fréttatía vikunnar: Kjarnorkukafbátur, málþóf og magapína Hneykslast á freðnum Bieber dansa við Sexyy Redd og kyssa hana á ennið Ætlar að ná styrk í fingurna til að geta greitt dótturinni Ragga Holm og Elma trúlofaðar Eftirlætis náttúruperlur Ásu Steinars Bieber gefur út óvænta plötu Þúsundir mótmæla: Hætt við tónlistarhátíð þar sem Ye átti að koma fram Ný tónlistarhátíð í síldarverksmiðjunni á Hjalteyri Sjá meira