Átta virkjanir gæti þurft fyrir Helguvík 9. janúar 2009 19:07
Ráðamenn Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja eru sammála um að fyrirtækin muni ekki getað útvegað alla þá orku sem álver í Helguvík þarf innan sjö ára, þrátt fyrir að þau réðust í byggingu sex virkjana. Tvöhundruð megavött hið minnsta vantar upp á, sem samsvarar því að virkja þyrfti til viðbótar bæði við Bitru og Urriðafoss til að ná endum saman.Iðnaðarráðherra hefur fyrir hönd ríkisstjórnarinnar gefið grænt ljós á að Norðurál reisi allt að 360 þúsund tonna álver í Helguvík en það yrði að framleiðslugetu tvöfalt stærra en álverið í Straumsvík. En hvaðan á fá þau 625 megavött sem þarf til að bræða allt þetta ál í Helguvík?Hitaveita Suðurnesja áformar að virkja á þremur stöðum; á Reykjanesi, Eldvörpum og í Krýsuvík, og ná þannig samtals 250 megavöttum. Þá vantar 375 megavött.Orkuveita Reykjavíkur hefur sett upp áætlun um um þrjár virkjanir í þessu skyni; á Hellisheiði, í Hverahlíð og við Gráuhnjúka, og hyggst þannig afla 175 megavatta. Þessar sex virkjanir duga ekki til því enn vantar þá 200 megavött.Líklegt þykir að horft verði til Bitruvirkjunar en samt vantar enn meira. Hluti virkjana neðri Þjórsár, eða allar þrjár, gætu brúað bilið. Iðnaðarráðherra leggst hins vegar gegn því að orkan þaðan fari í Helguvík, og segir að Norðurál verði að sætta sig við minna álver dugi ekki rafmagnið frá Orkuveitu Reykjavíkur og Hitaveitu Suðurnesja.Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, og Guðlaugur Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segja báðir að þau fyrirtæki séu ekki í stakk búin til að útvega alla orkuna innan tímarammans, en álverið á að vera komið í fullan rekstur árið 2015.Í þingliði sjálfstæðismanna efast menn um að rétt sé að útiloka Þjórsá fyrir Helguvík. Jón Gunnarsson segir að ef iðnaðarráðherra sé á móti því að nota orkuna úr neðri hluta Þjórsár verði hann að benda á aðra valkosti.
Mest lesið Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Innlent Írönum hótað hefndum eftir árás á herstöð Bandaríkjanna Erlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Allt að sautján stigum og mildast á Suður- og Vesturlandi Veður Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Fleiri fréttir Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Krefjast þess að náttúruhagsmunir verði settir ofar fjárhagslegum hagsmunum Dalsbús Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Mörg hundruð minkar sluppu úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Sjá meira