Innlent

Venjulegar skuldir í hendur handrukkara

Hafa fært út kvíarnar og ógna nú fólki til að innheimta lögmætar skuldir, svo sem vangoldna húsaleigu eða bílaskuldir, svo dæmi séu nefnd. Myndin er sviðsett.
Hafa fært út kvíarnar og ógna nú fólki til að innheimta lögmætar skuldir, svo sem vangoldna húsaleigu eða bílaskuldir, svo dæmi séu nefnd. Myndin er sviðsett.

Handrukkarar eru farnir að banka upp á hjá fólki til að rukka það um skuldir sem stofnað er til með lögmætum hætti. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur tvö slík mál til rannsóknar.

„Innheimta“ af þessu tagi hefur hingað til að mestu verið bundin við fíkniefnaskuldir eða skuldir sem eru tilkomnar með ólögmætum hætti og þá tengdar viðskiptum í fíkniefnaheiminum, en nú eru almennir borgarar farnir að verða fyrir barðinu á henni. Lögregla telur að svona málum eigi eftir að fjölga. Skuldir af þessu tagi eru til að mynda í formi vangoldinnar húsaleigu eða skulda vegna bílakaupa, svo dæmi séu nefnd,

„Fyrirliggjandi eru upplýsingar hjá embættinu þess efnis að þessi þróun sé orðin að veruleika,“ segir Haraldur Johannessen ríkislögreglustjóri, spurður hvort vitneskja um handrukkanir vegna lögmætra skulda liggi fyrir hjá embættinu. Spurður hvort þessa iðju stundi einstaklingar eða hópar segir ríkislögreglustjóri embættið hafa upplýsingar um að þar sé bæði um að ræða einstaklinga og hópa sem þekktir séu úr undirheimunum.

Ríkislögreglustjóri telur að í því erfiða efnahagsástandi sem nú ríki sé sú hætta fyrir hendi að svokölluðum handrukkunum, það sé innheimtu skulda með hótun eða beitingu ofbeldis, muni fjölga.

„Fram til þessa hefur þess háttar innheimtustarfsemi aðallega tengst fíkniefnaskuldum, en nú eru vísbendingar um að slíkum aðferðum sé einnig beitt við innheimtu annarra og hefðbundnari skulda þegar viðtekin úrræði hafa ekki skilað árangri,“ segir ríkislögreglustjóri. Hann bendir jafnframt á að greiningardeild embættisins hafi strax í febrúar varað við þessari þróun samfara efnahagsástandinu sem nú ríkir í landinu.

H

araldur hvetur fólk sem verður fyrir slíkri refsiverðri háttsemi eindregið til að leita til lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×