Óljóst með fasteignalánin hjá Kaupþingi 9. október 2009 13:01
Fólk með erlend fasteignalán hjá Landsbankanum getur fengið lækkun á höfuðstól við skuldbreytingu í óverðtryggð krónulán, líkt og hjá Íslandsbanka. Enn er óljóst hvort Kaupþing býður viðskiptavinum sínum upp á að leiðréttingu fasteignalána. Íslandsbanki upplýsti í síðustu viku að hann hyggðist - fyrstur íslenskra lánastofnana - bjóða viðskiptavinum upp á leiðréttingar á höfuðstólum fasteignalána. Viðskiptavinir bankans geta frá næstu mánaðamótum óskað eftir því að breyta fasteignalánum í óverðtryggð krónulán og við þá breytingu verða höfuðstólar gengislána færðir niður um 25% og 10% á verðtryggðum lánum. Skömmu síðar kynnti ríkisstjórnin sínar aðgerðir sem felast í lækkun greiðslubyrði lána, þ.e. fólk getur óskað eftir því, hjá hvaða banka sem er, að lækka mánaðarlegar afborganir. Á verðtryggðum lánum verður greiðslan miðuð við 1. janúar í fyrra en gengistryggð í maí í fyrra. Með þessari leið hækka eftirstöðvarnar hraðar - hins vegar er sett þriggja ára þak á lengingu lánstímans. Kaupþing og Landsbanki höfðu ekkert ákveðið í síðustu viku hvort þeirra viðskiptavinir gætu fengið leiðréttingar á höfuðstólum. Fréttastofa ítrekaði í dag fyrirspurnir sínar. Hjá Kaupþingi fengust þær upplýsingar að þar sæti hópur manna við að reikna hvort og þá hvaða aðgerðir bankinn getur gripið til í þessum efnum. Landsbankinn hefur hins vegar ákveðið að bjóða fólki með myntkörfulán að skuldbreyta þeim í óverðtryggð krónulán og verður þá einhver leiðrétting á höfuðstól. Óvíst er hversu mikil leiðréttingin verður. Landsbankinn ætlar hins vegar ekki að leiðrétta höfuðstóla verðtryggðra krónulána.
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Sjá meira