Ungur lögfræðingur gefur út sína fyrstu glæpasögu 9. október 2009 04:00 Ragnar Jónasson fetar í fótspor Agöthu Christie með sinni fyrstu glæpasögu. fréttablaðið/valli „
Ég vona að það sé pláss fyrir okkur bæði á markaðnum," segir lögfræðingurinn Ragnar Jónasson sem hefur gefið út sína fyrstu glæpasögu, Fölsk nóta. Bókin verður í harðri samkeppni fyrir jólin við nýja glæpasögu Agöthu Christie sem Ragnar sá einmitt sjálfur um að þýða. Hann var aðeins sautján ára þegar hann þýddi sína fyrstu Agöthu Christie-bók og síðan hafa þrettán fylgt í kjölfarið. Það er samt ekki fyrr en núna sem hinn 33 ára Ragnar fetar í fótspor átrúnaðargoðsins. Spurður hvort hann skjóti Agöthu ekki ref fyrir rass með nýju bókinni er fátt um svör. „Það verða aðrir að dæma um það. Hún er drottningin og það er erfitt að bera sig saman við hana. Hún er mikill snillingur." Þrátt fyrir að lifa og hrærast í heimi lögfræðinnar þar sem mörg spennandi mál rekur á fjörur hans segist Ragnar hafa lítinn áhuga á að skrifa spennusögur í anda bandaríska metsöluhöfundarins og lögfræðingsins Johns Grisham. „Maður reynir að skrifa um allt annað en vinnuna til að fá meiri tilbreytingu. Maður lítur helst á þessa bresku og íslensku glæpasagnahöfunda sem fyrirmyndir." Fölsk nóta fjallar um Ara Þór Arason sem fær himinháan greiðslukortareikning frá enskum banka sem virðist hafa átt að berast föður hans og alnafna sem hvarf með dularfullum hætti. Ragnar fékk hugmyndina að bókinni þegar hann var staddur í flugvél fyrir þremur árum. „Ég gaf mér ekki mikinn tíma í þetta fyrr en um jólin 2007. Þá hvatti konan mín mig til að halda áfram og drífa í þessu," segir Ragnar. Hann segir að áhuginn á glæpasögum Agöthu Christie hafi kviknað þegar hann var tólf ára. „Ég fór að þýða smásögur eftir hana á unglingsárunum og nokkrar birtust í Vikunni. Svo fékk ég þá flugu í höfuðið hvort ég gæti ekki þýtt eina bók eða svo. Ég spurði hvort það vantaði þýðanda og þau hringdu í mig nokkrum mánuðum síðar og gáfu mér tækifæri." Ragnar segir það tvennt ólíkt að þýða og skrifa sína eigin sögu. „Þegar maður er að þýða er þægilegt að vera með handritið fyrir framan sig en í hinu er maður með autt blað og það getur reynt svolítið á." Þrátt fyrir að vilja ekki líkja sér við Agöthu er eitt líkt með vinnubrögðum þeirra tveggja: „Ég reyni að hafa óvæntan endi. Við eigum það sameiginlegt. Ég reyni að leiða lesendur á villigötur þangað til í seinasta kaflanum. Þá kemur hið sanna í ljós."
Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Sjá meira