Björguðu átta manns eftir ótrúlega hrakningar Valur Grettisson skrifar 21. febrúar 2009 17:21 Óskar Björn Óskarsson, til vinstri, ásamt vinnufélaga sínum. Óskar bjargaði átta manns, þar af fim börnum úr hrikalegri neyð í Danmörku. „
Þetta voru þrír fullorðnir einstaklingar og svo fimm börn," segir Óskar Björn Óskarsson sem sótti átta manns til Reesnæs Strandvej í Danmörku en þau voru þar aðframkominn eftir að hafa verið svikinn um vinnu og pening. Um íslenska fjölskyldu er að ræða en með henni var vinur þeirra. Þau voru á þrítugsaldri en börnin frá tveggja ára aldri til ellefu ára. Seldu allt í von um betra líf Að sögn Óskar ákvað fólkið að selja allt sem það átti hér á landi fyrir um mánuði síðan. Ástæðan var auglýsing sem þau sáu í Fréttablaðinu um að vinnu væri að hafa í Reesnæs Strandvej sem er um hundrað og fimmtíu kílómetrum frá Kaupmannahöfn. Fólkið hafði misst vinnu sína hér á landi vegna kreppunnar, og hugðist leita að nýju og betra lífi í Danmörku. Þess vegna seldu þau alla sína búslóð og fluttu í góðri trú til Danmerkur. Áttahundruð þúsund í tryggingu og leigu Þegar þangað var komið tók á móti þeim maður sem lét þau borga sér þrjú þúsund krónur danskar fyrir að flytja þau frá flugvellinum í fyrirheitna bæinn. Þar þurftu þau svo að reiða fram fimmtíu þúsund danskar krónur fyrir tryggingu í íbúð og leigu. Það gera rúmlega áttahundruð þúsund krónur. „Maðurinn fór með þau í húsnæði sem þau áttu að vera í, síðan voru þau flutt í annað húsnæði fjarri allri byggð," segir Óskar sem ræddi við fjölskylduföðurinn sem lýsti fyrir honum sögu sinni. Þegar þau voru síðan kominn í það húsnæði, hvarf maðurinn með peninginn og hefur ekki sést síðan. Matvælaaðstoð til fjölskyldunnar „Þau voru allslaus, áttu ekki neitt til þess að kaupa sér mat né voru þau á bíl til þess að fara fjögurra kílómetra leið í næstu búð," segir Óskar en það var sendiráð Íslands í Danmörku sem hafi samband við Óskar. Hann var beðinn um að fara og sækja fólkið, en degi áður hafði sendiráðið reynt að koma mat til fjölskyldunnar sem var aðframkominn án penings í mánuð í Danmörku. Illa stemmd eftir hrakningar Úr verður að Óskar fer ásamt Þóri Jökli Þorsteinssyni, sendiráðspresti og sækja fólkið. Spurður hvernig þau báru sig þegar hann kom þangað, svarar Óskar að þetta hafi verið hraust og viljasterk fjölskylda og þau hafi ekkert kveinkað sér. Engu að síður voru þau búinn að vera föst í mánuð út í sveitinni, og allar bjargri bannaðar að hans sögn. „Þau voru náttúrulega illa stemmd," segir Óskar þegar hann lýsir andlegu fasi fólksins. Hann segir að það hafi verið átakanlegt að sjá börnin þarna, en þau báru sig nú samt mjög vel. Óskar segist frekar vera reiður að einstaklingar skuli notfæra sér neyð fólks, og von þeirra um nýtt og betra líf fjarri kreppunni. Yfirvöld borguðu flugið „Það er bara ljótt að gera svonalagað," segir Óskar sem vill koma á framfæri til fólks að fara varlega ætli það sér að flytja erlendis. Það geti verið varasamt að stökkva á eitthvað tilboð, betra sé að leita ráða hjá þeim sem til þekkja í viðkomandi landi. Fjölskyldan flaug frá Kaupmannahöfn um hádegisbilið í dag en það var félagsmálaráðuneytið sem borgaði farið fyrir þau heim að sögn Óskars - slík var neyðin. Óskar gaf vinnu sína við að flytja búslóð fólksins til Kaupmannahafnar, segir að minna hafi það ekki mátt vera. Aftur á móti hafi sendiráðið borgað honum hluta af ferðinni. Biður fólk um að gæta sín Ástæðan fyrir því að haft var samband við Óskar er sú að hann hefur starfað við smíðavinnu og flutningar í Kaupmannahöfn. Hann aðstoðar fólk við að flytja til Danmerkur, hjálpar þeim að flytja og dyttar að íbúðum ef þörf þykir. Hann varar fólk eindregið við að flytja blint út. Þá bendir hann á að hafa samband við sendiráðið eða sig sjálfan í oskarbjorn@gmail.com. Hann sé öllum hnútum kunnugur og hafi slík sambönd að hann geti þó sannreynt ef um einhverskonar svik sé að ræða eins og í þessu tilfelli. Fjölskyldan lenti nú síðdegis á Íslandi.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Innlent Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Innlent Fleiri fréttir Grindavík Ultra strandaði við varnargarðana Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Hafi skynjað um nokkra hríð að já-hliðin væri ekki í sókn Mesta kjörsókn í sögu lýðveldisins Piparúða beitt við handtöku í Hafnarfirði „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum Nei-hliðin vann á ástríðunni „Landsbyggðin okkar stendur sterk” Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Ferðalagið með ruslið ætti ekki að lengjast þó þjónustan færist fjær Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Segir niðurstöðuna áfall fyrir ríkisstjórnina Sprengisandur: Kosningarnar gerðar upp Lokatölur úr Suðvesturkjördæmi: Fullvissuðu þjóðina um að svarið væri nei Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Lokatölur í Norðausturkjördæmi: Nei jók forskotið undir lokin Lokatölur úr Norðvesturkjördæmi: Nei-ið með 25 prósentustiga forskot Lokatölur úr Suðurkjördæmi: Sextíu prósent sögðu nei Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sjá meira