Enski boltinn

Gylfi fær nýjan samning hjá Reading

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Gylfi Þór í leik með Reading.
Gylfi Þór í leik með Reading. Nordic Photos / Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson mun líklega skrifa undir nýjan fjögurra ára samning við enska B-deildarfélagið Reading nú síðar í vikunni.

Þetta kemur fram á fótbolti.net í dag en Gylfi hefur átt góðu gengi að fagna á tímablinu til þessa og skoraði um helgina sitt annað deildarmark fyrir félagið.

Núverandi samningur Gylfa rennur út í lok leiktíðarinnar en hann hefur verið í herbúðum félagsins síðan hann var sextán ára gamall. Gylfi er nú tvítugur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×