Innlent

Helmingi meiri afli en í fyrra

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Síldarveiðiskip að veiðum. Mynd/ Vilhelm.
Síldarveiðiskip að veiðum. Mynd/ Vilhelm.
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júnímánuði var 55% meiri en í júní í fyrra. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 10,2% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði.

Aflinn í júní síðastliðnum var tæp 128 þúsund tonn samanborið við 61 þúsund tonn í sama mánuði árið áður. Botnfiskafli jókst um rúm 12.000 tonn frá júní í fyrra og nam rúmum 38 þúsund tonnum. Afli uppsjávartegunda nam tæpum 84 þúsund tonnum sem er um 54 þúsund tonnum meiri afli en í júní 2008. Flatfiskaflinn var rúm 3.700 tonn í júní og jókst um tæp 1.400 tonn frá fyrra ári. Þá nam Skel- og krabbadýraafli 1.314 tonnum samanborið við 2.189 tonna afla í júní í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×