Ný prinsessa glæpasagnanna 17. október 2009 07:00 Fyrsta bók Lilju, Spor, kemur út á næstu vikum. Hún vill verða prinsessa íslenskra glæpasagna. fréttablaðið/gva „
Yrsa er kölluð drottning íslensku glæpasögunnar. Ég vona að ég geti orðið prinsessan,“ segir Lilja Sigurðardóttir, sem gefur út sína fyrstu glæpasögu á næstunni. Hún nefnist Spor og er eina íslenska glæpasagan sem Bjartur gefur út fyrir þessi jól. Lilja var uppgötvuð eftir að hún sendi inn handrit að bókinni í samkeppni sem Bjartur stóð fyrir á síðasta ári þar sem leitað var að hinum íslenska Dan Brown. Hennar handrit þótti skara fram úr en taldist þó ekki nógu líkt þeirri formúlu sem Brown hefur notað í bókum sínum. „Auðvitað hefði verið gaman að vinna keppnina,“ segir Lilja, sem var engu að síður ánægð með að fá útgáfusamning. „Þetta er ekki að öllu leyti hreinræktuð glæpasaga. Þótt plottið sé þannig byggt upp er þetta líka þroskasaga manns sem hefur varið lífi sínu dálítið illa. Þessi atburðarás sem hann lendir í verður til þess að hann fer að endurskoða marga aðra hluti í lífi sínu. Að því leyti er þetta saga í sögunni sem er kannski ekki í þessum hefðbundna glæpasagnastíl.“ Lilja segist vera mjög hrifin af Dan Brown eins og svo margir aðrir. Hún á þó enn eftir að lesa nýjustu söguna hans, Týnda táknið. „Ég er almennt mjög hrifin af glæpasögum og sögum sem skemmta fólki,“ segir hún. Engir glæpasagnahöfundar eru þó í mestu uppáhaldi hjá henni, heldur þeir Ernest Hemingway og Halldór Laxness. Lilja er menntaður uppeldisfræðingur en vinnur við vefumsjónarkerfi. Hún samdi Spor í frístundum sínum og hlakkar mikið til að sjá afraksturinn koma út úr prentsmiðjunni. Þýska útgáfufélagið Lübbe, sem gefur út Jón Hall Stefánsson, hefur þegar fengið handritið til yfirlestrar og virðist vera mjög spennt fyrir hinni nýju íslensku glæpasagnaprinsessu.- fb
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Ólafur Darri herjar á ringlaðan Jamie Dornan Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Hozier skemmti sér á almyrkvahátíð Tónlist Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Sjá meira