Röng skilaboð að fara ekki utan 22. maí 2009 06:00 Rósa Guðbjartsdóttir „
Með fullri virðingu fyrir mikilvægi þess að rækta vinabæjartengsl þá hef ég lýst þeirri skoðun minni á fundum bæjarráðs að mér finnist það sérkennileg forgangsröðun að ætla að fara í ferð sem þessa í því efnahagsástandi sem nú er,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir um ferð á vegum Hafnarfjarðarbæjar á vinabæjarmót í Uppsala í Svíþjóð. Lagt var upp í ferðina í gær. Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir að venjan sé sú að senda flokk ungmenna og nú sé það leiklistarflokkur ungs fólks sem undirbúið hafi sig frá því í fyrrahaust. Með eru tveir leiðbeinendur, tveir embættismenn og tveir bæjarfulltrúar; einn frá Samfylkingu og einn frá VG. Sjálfstæðismenn sendu ekki sinn fulltrúa til Uppsala. „Ég tel að þegar við blasir niðurskurður þá séu ýmis önnur verkefni í sveitarfélaginu brýnni og ég er sannfærð um að flestir Hafnfirðingar séu sammála mér í því,“ segir Rósa. Lúðvík segir kostnað bæjarsjóðs af farseðlum verða um hálf milljón króna. Uppsala borgi uppihald og að auki fáist styrkur frá Evrópusambandinu. Bæjarstjórinn segir að áður fyrr hafi öllum bæjarfulltrúum staðið til boða að fara á þetta vinabæjarmót. Í ljósi ástandsins sé þátttakan nú takmörkuð við einn fulltrúa frá hverjum flokki. Óþarfi sé að ýta undir ranghugmyndir ytra um ástandið á Íslandi. „Við tókum þá ákvörðun að það væru röng skilaboð gagnvart vinaþjóðum og samstarfsþjóðum á Norðurlöndum að við værum í þeirri stöðu að við gætum ekki sent formlega fulltrúa frá okkur,“ segir Lúðvík Geirsson. - gar
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Fleiri fréttir „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Ekki síður í vandræðum með bóklega kennslu Áhrif smyglmáls og hugsanleg brot stjórnvalda á alþjóðlegum skuldbindingum Flúði heimili sitt eftir að hafa hótað stofnun MMS ekki kunnugt um neinar breytingar á einkunnagjöf Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Félag Ragnars Freys telur uppsögn hans ólögmæta Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi „Áfall fyrir starfsfólk“ Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Hækjubræður á þingi Framsókn kynnti tillögu að þjóðarsátt Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Sprengingin í Fóðurblöndunni enn til rannsóknar hjá lögreglu og Vinnueftirlitinu Bein útsending: Beina sjónum að leit og björgun á norðurslóðum „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Varnarsigur segir formaður bæjarráðs Ísafjarðar Tíu tilvik í fyrra þar sem látnir lágu ófundnir í viku eða lengur 37 prósent landsmanna fylgjandi innheimtu veggjalda Ekkert verður af bankasamruna og Ísafjarðarflugið lifir „Það er ekki hægt að taka jafnaðarmanninn úr mér“ Svavar Sigmundsson er látinn Líkamsárás, húsbrot og eignaspjöll Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Sjá meira