Innlent

Borgarfulltrúar hjóla í vinnuna

Borgarfulltrúarnir Björk, Oddný, Sóley, Þorbjörg og Jórunn. Myndin er tekin af Reykjavíkurborgar.
Borgarfulltrúarnir Björk, Oddný, Sóley, Þorbjörg og Jórunn. Myndin er tekin af Reykjavíkurborgar.
Borgarfulltrúarnir í Reykjavík taka fullan þátt í heilsu- og hvatningarátakinu Hjólað í vinnuna. Íþróttasamband Íslands stendur ásamt samstarfsaðilum fyrir Hjólað í vinnuna í sjötta sinn og er markmiðið að vekja athygli á hjólreiðum sem hagkvæmum samgöngumáta sem einnig styrkir heilsu og bætir borgarbrag.

Reykjavíkurborg hefur undanfarin misseri hvatt starfsmenn sína til að leggja stund á vistvænan ferðamáta til og frá vinnu og hafa nokkrir vinnustaðir af því tilefni fest kaup á reiðhjólum sem hægt er að nota í styttri vinnuferðir, að fram kemur á vef borgarinnar.

Nokkrir borgarfulltrúar hittust á reiðhjólum fyrir framan Ráðhúsið í gær. Það voru Björk Vilhelmsdóttir, Oddný Sturludóttir, Sóley Tómasdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Jórunn Frímannsdóttir sem hafa hjólað af kappi síðustu daga.

Þátttakan í Hjólað í vinnuna hefur aldrei verið meiri en nú og eru 7160 skráðir til leiks í 1080 liðum frá 454 fyrirtækjum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×