ESB-ályktun hugsanlega opinberuð í dag 14. maí 2009 17:12 Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Mynd/Anton Brink
Þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið verður hugsanlega opinberuð í dag, en hún verður lögð fyrir Alþingi í næstu viku. Lítið ber á milli ríkisstjórnarinnar og framsóknarmanna í málinu. Þetta segir Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra. Forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa furðað sig á því af hverju leynd ríki yfir þingsályktuninni. Össur segist ekki hafa viljað láta ályktunardrögin fara frá sér fyrr en að hafa rætt þau við forystumenn stjórnarandstöðuflokkanna. Formenn stjórnarflokkanna kynntu drög að þingsályktunartillögunni fyrir forystumönnum stjórnarandstöðuflokkanna í gær. Jafnframt fundaði Össur með þeim í dag. „Þetta voru mjög uppbyggilegar viðræður sem ég átti við þá í sitthvoru lagi," segir Össur sem á allt eins von á því að ræða ennfrekar við þá um málið á næstu dögum. Ráðherrann segist hafa átt sérlega skemmtilegar og gagnlegar viðræður við Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokksins. „Hann er skynsamur ungur leiðtogi og að mínu viti er mjög skammt á milli annars vegar þeirrar tillögu sem við höfum í smíðum og hins vegar landsfundarályktunar Framsóknarflokksins." Össur kveðst sömuleiðis hafa átt gagnlegar viðræður við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins, þrátt fyrir að ljóst sé að mikið beri á milli hugmynda ríkisstjórnarinnar og hugmynda Sjálfstæðisflokksins. Þá segir Össur að gott hafi verið að ræða við Þór Saari, þingmann Borgarahreyfingarinnar, og kynnast viðhorfum hans. „Ég get í reynd fallist á allar forsendur Borgarahreyfingarinnar fyrir stuðningi sínum við tillöguna."
Tengdar fréttir Rýr tillaga um aðildarviðræður Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, segir að þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið sé öllu rýrari en hún hafi átt von á. Hún vill að leynd um tillöguna verði aflétt sem fyrst. Þá telur hún líklegt að erfiðlega muni reynast að ná samstöðu um tillöguna vegna afstöðu Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. 14. maí 2009 11:28 Mest lesið „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Innlent „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Fólk sé bugað eftir langa bið á flugstöðinni Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Sjá meira
Rýr tillaga um aðildarviðræður Birgitta Jónsdóttir, þingflokksformaður Borgarahreyfingarinnar, segir að þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um aðildarviðræður við Evrópusambandið sé öllu rýrari en hún hafi átt von á. Hún vill að leynd um tillöguna verði aflétt sem fyrst. Þá telur hún líklegt að erfiðlega muni reynast að ná samstöðu um tillöguna vegna afstöðu Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. 14. maí 2009 11:28