Kannast ekki við óánægju starfsmanna vegna arðgreiðslna Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. maí 2009 13:53 Hjörleifur Kvaran segist ekki kannast við óánægju starfsmanna. Mynd/ Valgarður.
Hjörleifur Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, kannast ekki við óánægju meðal starfsmanna fyrirtækisins um arðgreiðslur OR til eigenda. Hann segir að fyrirtækið hafi greitt eigendum sínum arð í mjög langan tíma og árlega, nokkuð óháð því hver útkoma fyrirtækisins hafi verið fjárhagslega. Fréttastofa RÚV greindi frá því í hádeginu að trúnaðarmenn hjá Orkuveitu Reykjavíkur telji að kominn sé upp trúnaðarbrestur á milli starfsmanna Orkuveitunnar og stjórnar hennar. Ástæðan sé sú að starfsmenn hafi samþykkt að taka á sig launalækkanir sem myndu spara fyrirtækinu 400 milljónir króna. Á sama tíma væri fyrirtækið að greiða eigendum 800 milljónir í arð. Orkuveitan tapaði 73 milljörðum í fyrra.Hafa hingað til greitt 1600 milljónir Hjörleifur segir að Orkuveitan hafi á undanförnum árum greitt eigendum um 1600 milljónir króna í arð árlega. Sú upphæð hafi hækkað með verðlagi. „Um síðustu áramót var séð hver útkoman yrði á þessu ári vegna þess hvernig gengið væri að leika okkur. Þá var samið um að lækka þessa upphæð um helming," segir Hjörleifur. Hann bendir því á að arðurinn sem er greiddur núna sé helmingurinn af því sem hann hafi verið undanfarin ár. „Með því má segja að eigendurnir séu að taka á sig líka hluta af þeim erfiðleikum sem eru uppi," segir Hjörleifur. Hann segir að þetta sé ekkert nýtt heldur hafi þessar upplýsingar legið fyrir frá síðustu áramótum. „Svo skulum við líka hafa það í huga að arðgreiðslurnar, sem eru að renna til eigendanna, að þær fara til samfélagsins. Þær eru ekki að fara í vasa neinna auðmanna," bendir Hjörleifur á. Hann segir að greiðslurnar renni til sveitarfélaganna, Reykjavíkurborgar, Akraness og Borgarbyggðar. Þær renni síðan til samfélagslegra verkefna og nýtist borgurunum með beinum hætti.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira