Innlent

Fulltrúi AGS nágranni Hannesar Smárasonar

Franek Rozwadowski sendifulltrúi Aljóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi býr á Fjölnisveginum í Reykjavík steinsnar frá Hannesi Smárasyni.
Franek Rozwadowski sendifulltrúi Aljóðagjaldeyrissjóðsins hér á landi býr á Fjölnisveginum í Reykjavík steinsnar frá Hannesi Smárasyni.

Franek Rozwadowski sendifulltrúi Aljþóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hér á landi er nágranni Útrásarvíkingsins Hannesar Smárasonar á Fjölnisveginum í Reykjavík. Franek þessi leigir glæsivillu af Ingibjörgu Þórðardóttur formanns félags fasteignasala á Fjölnisvegi 8 en líkt og margir vita á Hannes hús númer 9 og 11 við sömu götu.

Gatan er ein sú glæsilegasta í Reykjavík en Björgólfur Thor Björgólfsson á hús við götuna sem hann býr reyndar ekki í. Það hús er númer 3 og er stórglæislegt likt og flest önnur húsin í götunni. Leikarinn Eggert Þorleifsson er einnig íbúi við Fjölnisveg, en hann er þekktur smekkmaður.

Framkvæmdir Hannesar Smárasonar á Fjölnisveginum vöktu þjóðarathygli á sínum tíma en hann ætlaði að tengja húsin saman. Þau áfrom gengu hinsvegar aldrei eftir. Hann dvelur nú afar sjaldan í húsunum þar sem hann er búsettur í Bretlandi en þangað fór hann fljótlega eftir að ljóst varð að fyrirtæki hans FL-Group átti undir högg að sækja.

Bæði hús Hannesar eru með þeim glæsilegustu á höfuðborgarsvæðinu og hafa verið gerð upp af stakri smekkvísi. Fjölnisvegur 9 er 350 fermetrar að stærð og Fjölnisvegur 11 er rétt tæpir 410 fermetrar.

Franek sendifulltrúi er því í fínum félagsskap hér á landi. Hvort sem það er þegar hann græjar efnahag landsins á daginn á skrifstofu sinni í Aðalstræti í miðbæ Reykjavíkur, eða þegar hann grillar heima á Fjölnisveginum á kvöldin.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×