Innlent

Saksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins til Íslands

Luis Moreno-Ocampo saksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins.
Luis Moreno-Ocampo saksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins.
Saksóknari Alþjóðaglæpadómstólsins, Luis Moreno-Ocampo, kom í heimsókn til Íslands í dag, föstudaginn 15. maí. Ocampo kemur hingað til lands í boði lagadeildar Háskólans í Reykjavík, en hann er heiðursgestur á alþjóðlegu málþingi lagadeildar, Domac og Landsnefndar um mannúðarrétt sem haldið verður í Háskólanum í Reykjavík á morgun, laugardaginn 16. maí.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Háskólanum í Reykjavík. Þar segir ennfremur að Luis Moreno-Ocampo sé argentískur lögfræðingur sem hefur gegn stöðu saksóknara við Alþjóðaglæpadómstólinn síðan 2003. Hann var áður saksóknari í Argentínu og varð þekktur fyrir óþreytandi baráttu sína gegn spillingu og mannréttindabrotum sem yfirmenn hersins þar í landi gerðust sekir um. Hann hefur á síðustu dögum og vikum vakið heimsathygli fyrir að krefjast framsals Omars Hassans al-Bashirs, forseta Súdans, fyrir að stuðla að þjóðarmorði í Darfur-héraði í Súdan.

Yfirskrift málþingsins sem haldið verður á laugardag er Framfylgd alþjóðalaga er varða gróf mannréttindabrot og mannúðarlög: Samspil alþjóðadómstóla og landsréttar.

Á meðal annarra þátttakenda á þessu málþingi má nefna Andre Nollkaemper (University of Amsterdam), Shireen Avis Fisher (Appeals Chamber, Special Court for Sierra Leone), Yuval Shany (Hebrew University), Ruth Mackenzie (University College London), Harmen van der Wilt (University of Amsterdam)og Þórdísi Ingadóttur, dósent við lagadeild HR.

Lagadeild HR er umsjónaraðili og þátttakandi í alþjóðarannsóknarverkefninu DOMAC. Á árinu 2008 hlaut verkefnið veglegan styrk úr 7. rannsóknaráætlun Evrópusambandsins að upphæð 1,4 milljónir evra. Þetta er langhæsti styrkur sem úthlutað hefur verið til íslensks verkefnis á sviði hug- og félagsvísinda. Þetta er einnig í fyrsta sinn sem íslenskur háskóli fær styrk úr rannsóknaráætlun Evrópusambandsins vegna rannsókna í lögfræði.

DOMAC leitast við að meta áhrif alþjóðadómstóla á landsrétt í málum er varða gróf og víðtæk mannúðar- og mannréttindabrot. Markmiðið er að efla samspil landsréttar og þjóðaréttar á þessu sviði, auka áhrif og virkni alþjóðadómstóla og bæta þar með viðbrögð landsréttar við slíkum brotum.

Samstarfsskólar Háskólans í Reykjavík eru Amsterdam University, Hebrew University í Jerúsalem og University College London. Þórdís Ingadóttir, dósent við lagadeild Háskólans í Reykjavík, stýrir verkefninu í heild. Um 20 rannsakendur eru nú að vinna að verkefninu.

DOMAC verkefnið er umfangsmikið. Rannsóknir fela m.a. í sér greiningu á alþjóðadómstólum, réttarkerfum í landsrétti, dómum alþjóðadómstóla sem og í landsrétti, og framfylgd þeirra. Hlutverk dómstóla og alþjóðastofnana í uppbyggingu réttarkerfa er einnig skoðað. Rannsóknir krefjast vettvangsferða og hafa starfsmenn heimsótt þau Balkanlönd sem eru að kljást við uppgjör stríðsglæpa og grófra mannréttindarbrota, sem og fimm Afríkuríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×