Þjórsárvirkjanir: Svandís neitar að staðfesta breytingar á skipulagi 14. maí 2009 15:55 Svandís vill ekki breytingar á aðalskipulagi í Skeiða- og Gnjúpverjahreppi. Mynd/ Valgarður.
Svandís Svavarsdóttir, nýr umhverfisráðherra Vinstri grænna, neitar að staðfesta breytingar á aðalskipulagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Í bréfi frá Umhverfisráðuneytinu til hreppsins, sem dagsett er 12. maí og fréttavefurinn Sunnlendingur.is hefur undir höndum, segir að ástæða synjunar ráðuneytisins sé að kynna þurfi breytinguna betur fyrir íbúum sveitarfélagsins. Með ákvörðun sinni setji ráðherra virkjunaráform í neðri hluta Þjórsár í upplausn. Þá segir Sunnlendingur að forveri og flokksfélagi Svandísar í Umhverfisráðuneytinu, Kolbrún Halldórsdóttir, hafi tilkynnt sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps skömmu fyrir kosningar til Alþingis að hún væri að íhuga að staðfesta ekki breytinguna á aðalskipulaginu. Nú hafi nýr umhverfisráðherra stigið skrefinu lengra og neitað formlega. Samkvæmt breytingunni á skipulaginu verður heimilt að tvískipta fyrirhugðum og samþykktum virkjunarframkvæmdum. Sunnlendingur segir að Skipulagsstofnun hafi gefið grænt ljós á breytinguna og mælt með því að ráðherra gerði slíkt hið sama, þrátt fyrir að kynningin á breytingunni hafi ekki verið nákvæmlega með þeim hætti sem fram kemur í lögunum. Þessu sé nýr umhverfisráðherra ósammála og í bréfinu sem sent hafi verið sveitarstjórn komi fram að ráðuneytið beini þeim tilmælum til Skipulagsstofnuinar að framvegis verði þess gætt að stofnunin víki ekki að neinu leyti frá kröfum um formlega kynningu á skipulagsbreytingum.
Mest lesið „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Innlent Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Innlent Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Innlent Kennarasambandið mismunaði konu Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Innlent Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja Innlent Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Innlent Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Innlent Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Innlent Fleiri fréttir Prestur afþakkar „ömurlegan málflutning“ Miðflokksins Púlsinn tekur til starfa gegn ofbeldi meðal barna Gripin í tollinum með þrjátíu kíló af amfetamíni Átta vilja tvö laus sæti í Landsrétti Katrín og Sturgeon hlutu Velsældarverðlaun Yfirborð golfvallarins eins og búðingur Sögufrægt og aldursfriðað hús orðið að slysagildru Kynna stafrænt Reykjavíkurkort Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Mörg dæmi um að tekið sé sérstakt tillit til umsóknarríkja „Það er ekki hægt að plata þjóðina inn í Evrópusambandið“ Skiptir um nefnd eftir tvo daga í þeirri fyrri Bak við lás og slá grunaður um risastórt kókaínsmygl Sjávarútvegsstjóri ESB í heimsókn og fíkniefni í Norrænu Frestur til að svara fyrirspurn ESA löngu útrunninn Bein útsending: Fundur atvinnuvegaráðherra og sjávarútvegsstjóra ESB Sættir sig ekki við sýknu lögreglumannsins Máttu vísa mæðgunum úr félaginu eftir allt saman Flestir vilja leiguþak Sjálfstæðisflokkurinn flytur í húsnæði Sjóvár Dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á dreng vegna dyraats „Húsið er náttúrulega einstaklega fagurt“ Stöðvaður með of marga farþega og einn í skottinu „Það er ósatt, ósatt með öllu“ Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Kennarasambandið mismunaði konu Útlit fyrir að íslensk stjórnvöld brjóti gegn alþjóðasamningum „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Meitlarnir komust loks í forgang eftir stefnubreytingu Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Sjá meira