Innlent

Einn tekinn með litaða díselolíu

Jeppi, sem lögreglan á Selfossi stöðvaði við eftirlit í gærkvöldi, reyndist vera með litaða díselolíu sem er undanþegin vegskatti og því mun ódýrari en venjuleg díselolía. Hún er ætluð á tæki og vinnuvélar sem ekki fara um vegina. Brot sem þetta er skattalagabrot og er lægsta sekt við þvi tvö hundruð þúsund krónur. Lögreglan á Selfossi, í samstarfi við Vegagerðina, stöðvaði nýverið um það bil hundrað bíla til að kanna olíuna og reyndist einn þeirra vera með litaða olíu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×