Innlent

FÍA kvartar yfir fullgildingu flugskírteina

Félag íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, hefur sent formlega kvörtun til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins vegna fullgildingar flugskírteina flugmanna frá ríkjum utan sambandsins. Um er að ræða flugmenn frá Venesúela sem eiga að fljúga vélum sem skráðar eru í Lettlandi og eru í eigu Icelandair Group. Að sögn FÍA eru flugmennirnir hvorki með fullgild réttindi til að fljúga innan Evrópusambandsins né með atvinnuréttindi í sambandinu. Nú eru um 60 íslenskir flugmenn, sem flogið hafa hjá Icelandair Group, án atvinnu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×