Innlent

Öryggi barna verði tryggt þrátt fyrir kreppuna

Sigríður Björnsdóttir, formaður samtakanna Blátt áfram.
Sigríður Björnsdóttir, formaður samtakanna Blátt áfram. Mynd/Anton Brink
Mikilvægt er að hvergi verði slegið slöku við að tryggja öryggi barna ekki síst þegar íslenskt þjóðfélag á í efnahagslegri kreppu. Í slíku ástandi fjölgar oft á tíðum félagslegum vandamálum sem auka áhættu á að börn verði fyrir ofbeldi. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar samtakanna Blátt áfram sem haldinn var í gær.

„Sú óhugnanlega staðreynd að allt að ein af hverjum fimm stúlkum og einn af hverjum tíu drengjum verða fyrir kynferðislegu ofbeldi fyrir átján ára aldur hrópar á öfluga forvarnarstarfsemi," segir í ályktuninni.

Aðalfundurinn krefst þess að ekki verði dregið úr forvarnarstarfi og skorar á stjórnvöld, kirkjuna, skólana og aðrar stofnanir og félagasamtök að tryggja öryggi barna.

Samtökin Blátt áfram vinna gegn kynferðislegu ofbeldi á börnum með forvarnarstarfsemi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×