Innlent

Ótrúlega lág tilboð berast Vegagerðinni

Örvænting virðist hafa gripið um sig meðal verktaka og verkfræðistofa. Vegagerðin fékk í vikunni tilboð í verk allt niður í 43 prósent af kostnaðaráætlun.

Ótrúlega lág tilboð frá aðilum sem taldir eru traustir sýna glögglega að menn eru tilbúnir að gefa verulegan afslátt af vinnu sinni til að fá verkefni.

Tilboð sem Vegagerðin fékk í fyrradag í snjómokstur næstu árin reyndust allt niður í 42,9 prósent af kostnaðaráætlun. Þannig býðst Steypstöð Skagafjarðar á Sauðárkróki til að annast vetrarþjónustu á þjóðvegum í Skagafirði og Austur-Húnavatnssýslu næstu þrjú árin fyrir innan við átján milljónir króna á ári, en kostnaðaráætlun hljóðar upp á nærri 42 milljónir króna.

Verkfræðistofur virðast einnig tilbúnar að slá verulega af til að fá verkefni, ef marka má tilboð í eftirlit með byggingu nýrrar brúar á Hvítá í Árnessýslu. Lægsta tilboð reyndist aðeins 45,3 prósent af kostnaðaráætlun. Það kom frá VSÓ - Ráðgjöf í Reykjavík, sem býðst til annast eftirlitið fyrir aðeins 4,3 milljónir króna. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 9,6 milljónir króna.

Alls buðu tíu verkfræðistofur í verkefnið og átti Almenna verkfræðistofan hæsta tilboðið, 18,6 milljónir króna.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×