Fangar peningalausir vegna verkefnaskorts 14. maí 2009 03:30 Verulega hefur dregið úr atvinnu fanga á Litla-Hrauni og hafa fangarnir nú sáralitla peninga milli handanna en dagpeningarnir duga ekki einu sinni fyrir sígarettum. fréttablaðið/heiða
Kreppan bitnar harkalega á föngum. Vinna hefur nánast lagst niður á Litla-Hrauni eftir að kreppan skall á og möguleikar fanga til að vinna sér inn peninga hafa dregist verulega saman. Fangarnir eru síður í stakk búnir til að framfleyta sjálfum sér. Margrét Frímannsdóttir, fangelsisstjóri á Litla-Hrauni, segir að stöðugt sé erfiðara að fá verkefni fyrir fangana. Verkefni tengd byggingarvinnu hafi lagst niður og í númeraframleiðslunni sé nánast ekkert að gera. „Í trésmiðjunni höfum við sárafá eða engin verkefni nema þau sem við reynum að búa okkur til sjálf. Við vorum með vörubrettasmíði. Ekkert hefur verið að gera í því í vetur. Þetta hefur reynst okkur mjög erfitt og þá um leið strákunum því að stór hluti af endurhæfingu þeirra er að hafa vinnu,“ segir Margrét. Fangar hafa getað keypt nauðsynjar fyrir þá þóknun sem þeir fengu fyrir vinnu sína og því ekki þurft að leita á náðir fjölskyldunnar. Þeir hafa nú sáralitla peninga milli handanna því að dagpeningar nægja ekki fyrir einum sígarettupakka. „Margir þeirra eiga fjölskyldur, eiginkonu og börn utan veggja og þar hefur líka kreppt að. Sumar eiginkonur hafa misst vinnuna. Þetta hefur mikil áhrif á fangana, bæði andlega og líkamlega,“ segir Margrét. Fjölbrautaskóli Suðurlands sér um nám í fangelsunum en fjárveitingar hafa verið skornar niður til skólans. Þá hefur áformum um að hefja byggingaframkvæmdir á Litla-Hrauni verið frestað. Starfsmenn á Litla-Hrauni hafa lækkað í launum og dregið úr aukavinnu. Mjög þröngt er í búi. Biðlisti eftir afplánun hefur lengst verulega. Fyrir fjórum árum voru fimmtíu menn á biðlista en í dag eru þeir um 200. Dómar hafa þyngst og afplánunartíminn er mjög langur. Þeir sem taldir eru hættulegir eru teknir strax í afplánun og sömuleiðis þeir sem óska eftir að fá að afplána með stuttum fyrirvara.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Sjá meira