Samningur um framkvæmd legháls- og brjóstakrabbameinsleitar 14. maí 2009 14:20 Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands, og Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra við hið nýja brjóstamyndatæki sem KÍ á en er starfrækt á Sjúkrahúsinu á Akureyri.
Í dag undirrituðu Krabbameinsfélags Íslands (KÍ), Heilsugæslustöðin á Akureyri (HAK) og Sjúkrahúsið á Akureyri (FSA) samning sem felur í sér að framkvæmd legháls- og brjóstakrabbameinsleitar á Eyjafjarðarsvæðinu fari fram á FSA. Samningurinn gildir til ársloka 2013. Undirritunin fór fram á ársfundi Sjúkrahússins á Akureyri, að því er fram kemur í tilkynningu. „Til leghálskrabbameinsleitar eru allar konur boðaðar á tveggja ára fresti, 20 til 69 ára, með þeirri undantekningu að konur á aldrinum 40-69 ára með eðlilega fyrri leitarsögu og tiltekinn fjölda eðlilegra frumustroka eru boðaðar á fjögurra ára fresti. Til brjóstakrabbameinsleitar með röntgenmyndatöku eru allar konur 40 til 69 ára boðaðar á tveggja ára fresti. Konur 70 ára og eldri eru ekki boðaðar, en þeim er frjáls þátttaka að eigin ósk," segir í tilkynningunni. Mikið hagræði Þá segir að í mörg ár hafi leit að leghálskrabbameini hjá konum farið fram á Heilsugæslustöðinni á Akureyri einn dag í viku. Með til tilkomu nýrrar stafrænna brjóstaröntgenmyndavélar, sem Krabbameinsfélag Íslands hefur komið fyrir á myndgreiningardeild FSA, hafa skapast aðstæður til endurskipulagningar á krabbameinsleit kvenna. „Til hagræðis fyrir konur var ákveðið að hafa leghálskrabbameinsleitina og brjóstakrabbameinsleitina á sama stað á FSA. Þar hefur verið innréttað húsnæði og Lionsklúbburinn Ösp gaf nýjan kvenskoðunarstól. Konur hafa nú þegar lýst yfir ánægju sinni yfir því að hafa báðar leitirnar á sama stað. Þær breytingar verða að leitin verður nú 2 daga í senn á 3-4 vikna fresti og ekki yfir sumartímann. Þó leghálskrabbameinsleitin verði nú á FSA mun hún verða undir umsjón Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri og munu tímapantanir verða þar áfram í síma 460 4600." Þorvaldur Ingvarsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá FSA segir að samningurinn geri spítalanum kleift að opna eins konar forvarnamóttöku fyrir konur sem búsettar eru á þjónustusvæði FSA. „Nú fer fram á einum stað leit að leghálskrabbameini og brjóstakrabbameini og á sama stað er ennfremur boðið upp á beinþéttnimælingar. Í þessu felst mikið hagræði fyrir skjólstæðinga okkar, sem nú þurfa einungis að mæta í eitt skipti á einn stað í stað þess að mæta tvisvar eða þrisvar sinnum á jafnmarga staði eins og áður var," segir Þorvaldur. Varðar um 6.000 konur Samningurinn sem undirritaður var í dag varðar skipulega leit að leghálskrabbameini hjá konum á aldrinum 20-69 ára og eldri og leit að brjóstakrabbameini með röntgenmyndatöku hjá konum 40-69 ára og eldri, sem búsettar eru á Eyjafjarðarsvæðinu. Þann 31. desember 2007 var fjöldi kvenna á þessu svæði á aldrinum 20-39 ára 2.636 og á aldrinum 40-69 ára 3.307, alls tæplega 6.000 konur. „Kerfisbundin leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum er umfangsmesta verkefni Krabbameinsfélags Íslands. Leitarstöð félagsins skipuleggur leitina og stjórnar henni samkvæmt samningi við heilbrigðisyfirvöld. Stjórnstöð leitarstarfsins er í húsi félagsins við Skógarhlíð 8 í Reykjavík, og eru flestar konur á höfuðborgarsvæðinu skoðaðar þar. Utan höfuðborgarsvæðis er skoðað á um fjörutíu heilsugæslustöðvum og sjúkrahúsum, í samstarfi við stjórnendur þeirra," segir að lokum.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira