Innlent

Ásakanir Ólafs harmaðar

Ólafur F. Magnússon
Ólafur F. Magnússon

„Meirihluti umhverfis- og samgönguráðs harmar tilefnis­lausar ásakanir og fullyrðingar áheyrnarfulltrúa ráðsins í garð meirihlutans og einstaka kjörins borgarfulltrúa,“ segir í bókun sem lögð var fram á fundi ráðsins á þriðjudag í tilefni bókunar Ólafs F. Magnússonar borgarfulltrúa um vinnubrögð vegna fyrirhugaðrar hesthúsabyggðar í Víðidal.

Ólafur kvartaði undan því að fá ekki að hitta fagaðila og fræðast af þeim um þá hættu, sem gæti stafað af hesthúsabyggðinni. „Þetta graf­alvarlega mál ber vott um pólitíska fyrirgreiðslustarfsemi og fullkomið skeytingarleysi gagnvart almannahagsmunum og náttúruvernd,“ bókaði Ólafur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×