Innlent

Verkfræðistofur bjóða mikinn afslátt

Myndin tengist ekki þessari frétt og sýnir reyndar framkvæmdir á flugvellinum í Dublin á Írlandi.
Myndin tengist ekki þessari frétt og sýnir reyndar framkvæmdir á flugvellinum í Dublin á Írlandi.

Verkfræðistofur eru tilbúnar að gefa mikinn afslátt til að fá verkefni, ef marka má tilboð sem Vegagerðin opnaði í gær, í eftirlit með byggingu nýrrar brúar á Hvítá í Árnessýslu. Lægsta tilboð reyndist aðeins rúmlega 45 prósent af kostnaðaráætlun. Það kom frá VSÓ - Ráðgjöf ehf. í Reykjavík sem býðst til annast eftirlitið fyrir aðeins 4,3 milljónir króna. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 9,6 milljónir króna. Alls buðu tíu verkfræðistofur í verkefnið og átti Almenna verkfræðistofan hæsta tilboðið, 18,6 milljónir króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×