Þurfti að slá lán fyrir tannviðgerð á dóttur sinni Helga Arnardóttir skrifar 14. maí 2009 19:10
Móðir fjögurra ára stúlku þurfti að greiða tæplega eitthundrað þúsund krónur fyrir tannviðgerð á dóttur sinni en fékk þriðjung endurgreiddan frá Tryggingastofnun. Hún þurfti að slá lán fyrir reikningnum og hefur enn ekki getað greitt það niður. Inga Þóra Þóroddsdóttir móðir Karenar, fjögurra ára gekk á milli tannlækna í leit að hagstæðasta verði fyrir dóttur sína. Karen er með of hátt sýrustig í munni og þurfti að gangast undir viðamikla tannviðgerð. Auk þess þjáist hún af ofsahræðslu í tannlæknastólnum og þurfti því að svæfa hana. Þegar hún hafði fundið ódýrustu tannlæknaþjónustuna þurfti hún að greiða um 95 þúsund krónur. Af því fékk hún 30 þúsund endurgreiddar. Inga Þóra segir að enginn geti reitt fram slíkar upphæðir á einu bretti. Fólk veigri sér við því að fara til tannlæknis þar sem kostnaðurinn sé himinhár. „Mér finnst það bara til skammar að fá ekki meira endurgreitt frá Tryggingastofnun," segir Inga Þóra. Könnun frá 2005 sýnir að tannheilsa íslenskra barna sé verri en barna á norðurlöndunum. En það hefur versnað segir Sigurður Rúnar Sæmundsson barnatannlæknir. Sigurður segir gjaldskrá Tryggingastofnunar lítið hafa hækkað frá árinu 1998. Auk þess hafi tannlæknar gefist upp á að verðleggja sig eftir gjaldskrá TR. Hann segir að Tryggingastofnun endurgreiði ekki 75% eins og forsvarsmenn hennar haldi fram. Það sé öllu nær 30-50%. Hann segir brýnt að grípa til aðgerða strax.
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Fleiri fréttir Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Sjá meira