Víðtækt samráð um samningsmarkmið 11. maí 2009 03:45 Andrés Pétursson.
Þáttaskil eru í utanríkisstefnu Íslands við ákvörðun ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og VG um að leggja fram tillögu á Alþingi um að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Utanríkisráðherra mun leggja tillöguna fram á fyrstu starfsdögum þingsins en þingsetning verður á föstudag. Í stjórnarsáttmálanum segir að víðtækt samráð verði á vettvangi Alþingis og við hagsmunaaðila um samningsmarkmið og umræðugrundvöll viðræðnanna. Enn fremur er tekið fram að stuðningur stjórnvalda við samninginn, þegar hann liggur fyrir, sé háður ýmsum fyrirvörum um niðurstöðuna út frá hagsmunum Íslendinga í sjávarútvegs-, landbúnaðar-, byggða- og gjaldmiðilsmálum, í umhverfis- og auðlindamálum og út frá almannaþjónustu. Andrési Péturssyni, formanni Evrópusamtakanna, lýst ágætlega á þessa fyrirætlan ríkisstjórnarinnar. „Þegar til lengri tíma er litið er eflaust betra að þingið fái að tjá sig um málið svo það fari þá með blessun þess. Ég vona bara að menn leggist ekki í málþóf." Andrés er bjartsýnn á að tillaga um aðildarviðræður verði samþykkt og sömuleiðis að samningur við Evrópusambandið verði okkur hliðhollur. „Ef hann verður slæmur þýðir það bara að ESB vill ekki fá okkur inn." Ragnar Arnalds, formaður Heimssýnar, er ósáttur við áform ríkisstjórnarinnar. „En þarna eru fimm þingmenn sem eru ákveðnir í að greiða atkvæði á móti og þeir geta orðið fleiri. Það stefnir í mikið samningaþóf," segir hann og minnir á að afstaða stjórnarandstöðunnar sé ekki einhlít heldur. Ragnar telur samskiptum Íslands og ESB teflt í hættu. „Það er vafalaust ekki hægt að gera samskiptum ESB og Íslands jafn mikinn grikk og þann að fara í aðildarviðræður og fella samninginn svo í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta hefur komið Norðmönnum í koll." bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Innlent Fleiri fréttir Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Sjá meira