Arftaki Sigga Storms hleypur maraþon 15. desember 2009 06:00 Hleypur maraþon Veðurfréttakonan Elísabet Margeirsdóttir hefur hlaupið fimm maraþon á síðustu fjórum árum. Fréttablaðið/stefán
Ásamt því að flytja fréttir af veðrinu hefur veðurfréttakonan Elísabet Margeirsdóttir hlaupið fimm maraþon á síðustu fjórum árum. „Ég byrjaði að skokka og stunda líkamsrækt þegar ég var um sextán ára gömul og eftir það fór ég að æfa hlaup. Það fer langur tími í undirbúning fyrir hvert hlaup og undanfarið hef ég verið að æfa með þjálfara ásamt nokkrum öðrum hlaupurum. Ég hljóp síðast maraþon í Frankfurt í október og hljóp það á þremur og hálfum tíma,“ segir Elísabet sem hefur tvisvar hlaupið í New York og einu sinni í Kaupmannahöfn og Berlin. Aðspurð segir hún erfitt að hlaupa heilt maraþon og segir síðustu fimm til tíu kílómetrana vera andlega erfiða en það gerist sjaldan að fólk gefist upp og ljúki ekki hlaupinu. Elísabet hefur sinnt starfi veðurfréttamanns í rúmt ár og til að byrja með stóð hún í skugganum af sjálfum Sigga Storm. Hann kvaddi hins vegar áhorfendur Stöðvar 2 nokkuð skyndilega og þegar Elísabet er innt eftir því hvort það hafi ekki verið erfitt að taka við af Sigga segir Elísabet svo ekki vera. „Það breyttist ekki mikið en mér fannst leiðinlegt að missa hann af skjánum, hann var skemmtilegur karakter sem sagði skemmtilega frá.“ Og spurð hvort Íslendingar geti átt von á hvítum jólum í ár segir Elísabet að erfitt sé að spá fyrir um það að svo stöddu. „Það fer kólnandi í vikunni og ætti að snjóa norðaustanlands um helgina. Það er smá úrkoma í kortunum suðvestanlands eftir helgi og ágætis líkur á að hún falli sem snjókoma. Spár geta snögglega breyst en ég vona að við fáum hvít jól,“ segir Elísabet að lokum. -sm
Mest lesið Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi Lífið Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Lífið Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Lífið „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Lífið „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Lífið Neistalaus trekantur leiðinlega fólksins Gagnrýni Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Lífið Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Lífið Þorgerður brák grafin úr gleymsku Lífið Ástin kviknaði á Humarhátíð Lífið Fleiri fréttir Purrkur Pillnikk spilar á Innipúkanum Ósýnileg veikindi hafi ekki minna vægi „Las þetta allt í drasl í gamla daga“ Þessi vilja verða safnstjóri Listasafns Reykjavíkur Þorgerður brák grafin úr gleymsku „Þú gerir heiminn að betri stað“ Ástin kviknaði á Humarhátíð Rúrik mætti með kærustuna í brúðkaupið Sælureitur Frosta og Helgu Gabríelu til sölu Tíu Þjóðhátíðarráð Arons Mola: „Ekki fara í tjörnina “ Bezos færir brúðkaupið vegna mótmæla Fyrsta fjölbragðaglímufélag landsins stefnir á sýningu „Þetta er auðvitað klisja en hann var fullkominn“ Zendaya sást í miðbænum Orri Steinn og Sylvía Rós eignuðust stúlku á þjóðhátíðardaginn Sumarleg og saðsöm salöt Verðlaunahús í Þingholtunum falt fyrir 239 milljónir Hálfmaraþon í hamingjusprengju eftir fótbrot í fyrra Glæsilegustu gellur Garðabæjar skáluðu á Garðatorgi „Ætlaði að halda þessu leyndu“ Heillandi heimili á Kársnesinu fyrir 236 milljónir „Fallegur fjölskyldusamruni“ Feneyjabúar æfir yfir glæsibrúðkaupi Bezos Stjörnum prýtt brúðkaup landsliðsmanns í Grikklandi Barnahátíðin Kátt snýr aftur Stjörnulífið: Laufey á Íslandi og stjörnubrúðkaup í Grikklandi Þegar stjórnvöld úðuðu efnum yfir almenning Málaði loftið í lit sem minnir á skólajógúrt Umbreyta Þjóðleikhúskjallaranum í kabarettklúbbinn Kit Kat „Þetta er bara það sem mig hefur langað alla ævi“ Sjá meira