Súludans auglýstur í tímariti fyrir unglingsstelpur 29. september 2009 05:00 þykir það leitt Halldóra Hagalín, ritstjóri Júlíu, segist ekki hafa vitað um efni auglýsingarinnar áður en blaðið fór í prentun. Fréttablaðið/GVA „
Mér þykir þetta leitt og ég sagði þeim að mér þætti auglýsingin ekki viðeigandi, en þau sannfærðu mig,“ segir dansarinn Josy Zareen. Josy hefur kennt dans á Íslandi frá árinu 2001. Í auglýsingu frá henni í tímaritinu Júlíu, sem kom út í fyrsta skipti í síðustu viku, er súludans auglýstur sem líkamsræktarkostur. Það væri ekki í frásögur færandi nema vegna þess að Júlía er fyrir unglingsstelpur. Tímaritið er gefið út af Birtíngi, sem er eitt stærsta útgáfufélag landsins og gefur meðal annars út Séð og heyrt, Vikuna, Mannlíf og DV. Halldóra Hagalín, ritstjóri Júlíu, segir að birting auglýsingarinnar hafi verið mistök sem starfsfólk hafi ekki tekið eftir fyrr en blaðið hafði verið prentað. „Ég get ekki beðist afsökunar nógu mikið. Auglýsingin á að sjálfsögðu ekki heima í unglingatímariti,“ segir hún. Josy er á öðru máli og segir að sölumaður Birtíngs hafi vitað um efni auglýsingarinnar og beinlínis sannfært hana um að birtingin væri viðeigandi, „Hún sagði að mömmurnar myndu lesa blaðið og þess vegna væri í lagi að birta hana,“ segir Josy og bætir við að aldurstakmark sé á súludansnámskeiðin, þó að þau feli ekki í sér nekt. Ritstjórinn segist hins vegar hafa talið að magadans væri eina viðfangsefni auglýsingarinnar. „Málið er að efri hluti auglýsingarinnar er fyrir magadanshúsið og neðri hlutinn er þetta polefitness sem við höfðum aldrei samþykkt og höfðum ekki hugmynd um að væri í auglýsingunni,“ segir Halldóra. „Við hefðum átt að taka eftir þessu þegar við fengum próförk á tölvutæku formi, en þetta fór framhjá öllum vegna þess að við treystum því að þetta væri magadans.“ Halldóra segir að mistökin séu sérstaklega óheppileg í ljósi þess að þetta var fyrsta tölublaðið og ritstjórnin hafi passað sig á því að birta ekkert stuðandi efni. Sem dæmi nefnir hún að listi yfir tíu boðorð í förðun innihaldi atriði á borð við: „Burstaðu tennurnar“, „borðaðu hollan mat, „þvoðu þér í framan áður en þú ferð að sofa“ og „Ekki kreista bólur“. atlifannar@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira