Bræður berjast 24. september 2009 06:00 Faðir kvelur syni sína en svo snúast spilin við. Mynd/LR-Grímur Bjarnason
Á Nýja sviði Borgarleikhússins hafa menn fylgt þeirri stefnu að kynna íslenskum áhorfendum ný erlend verk og á morgun verður þar frumsýnt írskt verk: Heima er best eftir Enda Walsh. Höfundurinn Enda Walsh er fæddur 1967 í Dublin og hafa verk hans verið sviðsett víða um heim. Tvö leikrita hans hafa verið sýnd hérlendis, Disco Pigs og Misterman. Heima er best (Walworth Farce) hlaut afbragðs viðtökur þegar það var frumsýnt í National Theatre í London í fyrra. Feðgar búa þrír í lítilli íbúð í úthverfi: Þröstur Leó Gunnarsson fer með hlutverk föðurins sem hefur í nær tvo áratugi læst syni sína tvo inni þar sem hann stjórnar þeim með harðri hendi í örvæntingarfullri tilraun til að halda fjölskyldunni saman. Synirnir Blake og Sean, sem þeir Guðjón Davíð Karlsson og Jörundur Ragnarsson leika, hafa lært að lifa með harðræðinu en eiga sér samt þann draum að komast út. Þessu gráa gamni lýkur þegar fjórða manneskjan bankar á dyr en hana leikur Dóra Jóhannsdóttir. Jón Páll Eyjólfsson leikstjóri er ekki þekktur fyrir að hlífa áhorfandanum og gerir hann það ekki heldur hér. Meðal fyrri uppsetninga hans er Maríubjallan (LA), Herra Kolbert (LA), Vestrið eina (Borgarleikhúsið) og Þú ert hér (Borgarleikhúsið). Sýningartímabil verka á nýja sviðinu er skarpt og er haldið áfram fyrirkomulagi sem tekið var upp í Borgarleikhúsinu á síðasta ári. Hvert verk er sýnt oft í viku í fyrir fram ákveðinn tíma sem er ekki lengri en fjórar vikur í senn. Þýðandi er Heiðar Sumarliðason en hann mun eiga verk á sviði Borgarleikhússins er líður á veturinn. Leikmynd og búningar annast Ilmur Stefánsdóttir. pbb@frettabladid.is
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira