Reyndi að kúga John Travolta 24. september 2009 06:00 Bráðaliði á Bahamaeyjum er sakaður um að hafa ætlað að kúga fé út úr John Travolta í kjölfarið á andláti sonar leikarans. Málið er fyrir dómi um þessar mundir. nordicphotos/Getty
Bráðaliði á Bahamaeyjum reyndi að kúga fé út úr bandaríska stórleikaranum John Travolta skömmu eftir sviplegt fráfall sonar hans. Réttarhöld í málinu hófust í gær. Bráðaliðanum Tarino Lightbourne og lögfræðingi hans, Pleasant Bridgewater, er gefið að sök að hafa ætlað að kúga fé út úr John Travolta skömmu eftir að sonur leikarans og eiginkonu hans, Kelly Preston, lést. Tarino var meðal þeirra fyrstu sem komu að syni Travolta, Jett, skömmu eftir að hann hafði fengið hjartaáfall í lok janúar á þessu ári. Hann heldur því fram að Travolta hafi ekki viljað fara með strákinn sinn á sjúkrahús á Bahamaeyjum heldur viljað fljúga honum til Bandaríkjanna og koma honum í hendur þarlendra lækna. Við það hafi glatast dýrmætur tími. Tarino lét lögregluyfirvöld vita að Travolta hefði neitað syni sínum um læknishjálp og bar lögreglumaðurinn Andrew Wells vitni um að hann hefði undirritað skjal frá Tarino þar sem yfirlýsing Travolta væri skjalfest. „Ég hef aldrei á mínum 27 ára ferli fengið slíka beiðni,“ sagði Wells fyrir dómi í Nassau, höfuðborg Bahamaeyja, í gær. Upphaflega var síðan gert ráð fyrir því að sjúkrabílnum með Travolta og syni hans yrði ekið út á flugvöll en þeirri áætlun var breytt á síðustu stundu og keyrt á Rand Memorial-sjúkrahúsið. Jett var þá látinn. Tarino mun síðar hafa nálgast Travolta og hótað honum að ef hann greiddi sér ekki átján milljónir punda, eða þrjá milljarða íslenskra króna, myndi hann fara í fjölmiðla og greina frá málsatvikum þennan örlagaríka dag. Travolta mun bera vitni í málinu á næstunni.
Mest lesið Leikkonan Hayden Panettiere er látin Lífið Barnalán hjá Brynju Dan Lífið Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Lífið Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Lífið Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Lífið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Lífið Bestu hlutverk Hayden Panettiere Bíó og sjónvarp Þórdís Elva er gengin út Lífið Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Lífið Svana á tímamótum og selur slotið Lífið Fleiri fréttir Egill Heiðar og Kittý selja Garðabæjarslotið Helstu samsæriskenningarnar um Evrópusambandið „Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Barnalán hjá Brynju Dan Herra og frú Crivello hamingjusöm hjón Svana á tímamótum og selur slotið Auðunn tilkynnir nýja kærustu Salka Sól tekur við af óléttri Jóhönnu Guðrúnu Stjörnulífið: Stjörnur í snípstuttu Leikkonan Hayden Panettiere er látin Eliza Reid var meðal gesta í brúðkaupinu Þórdís Elva er gengin út Efna til söfnunar í minningu Hennings Dorrit vill biðja eigendurna afsökunar Hunter Schafer alsæl eftir Íslandsför Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu Þórdís Kolbrún fékk hlýjar móttökur Adam Driver mættur í Marvel-heiminn Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Robbie Williams einhverfur Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Dorrit sendir rabbínanum tóninn Berskjölduð og óttaslegin eftir skilnaðinn og framtíðin óráðin Jóhanna Guðrún ólétt Útför Gunnars Þórðarsonar Dreymir um að halda næstu Kaleo-tónleika á Vestfjörðum Emmsjé edrú í sjö ár Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Sjá meira