Innlent

Spurningalistinn á íslensku myndi kosta 10 milljónir

Haraldur Benediktsson formaður BÍ.
Haraldur Benediktsson formaður BÍ.
Utanríkisráðuneytið hefur sent Bændasamtökunum svar við fyrirspurn þeirra um að fá afhenta íslenska útgáfu spurningalista framkvæmdastjórnar ESB. Ráðuneytið segir í svarbréfi að það hafi ekki í hyggju að leggja í þýðingu spurningalistans og ber m.a. fyrir sig kostnaði sem ráðuneytið áætlar að sé um 10 milljónir króna og verkið taki 2-3 mánuði að vinna. Með opinberri birtingu spurninganna telur ráðuneytið sig hafa gert almenningi kleift að kynna sér innihald þeirra með aðgengilegum hætti

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bændasamtökunum. Þá segir að í erindi BÍ hafi einnig verið vakin athygli á því að ýmsa fyrirvara þyrfti að gera varðandi landbúnaðar- og byggðarmál þegar spurningalista ESB væri svarað.

„Slíkir fyrirvarar munu fylgja þeim svörum sem Bændasamtökin hafa unnið að beiðni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins. Þá kom einnig fram ósk frá BÍ að sjónarmið þeirra varðandi hugsanlegan aðildarsamning verði látin fylgja nefndum svörum. Svör ráðuneytisins voru þau að þar sem svör Íslands muni eingöngu innihalda lýsingu á staðreyndum, löggjöf, innleiðingu löggjafar og framkvæmd hennar auk skipulags einstakra málaflokka telur ráðuneytið ekki tilefni til að senda samhliða svörunum álit einstakra samtaka á hugsanlegum aðildarsamningi.

Ein af ástæðum þess að BÍ óskuðu eftir því að fá spurningalistana sem vörðuðu landbúnað á íslensku voru þær að með þeim hætti væri auðveldara að kynna þá félagsmönnum. Um kynningu segir í bréfinu að ráðuneytið muni kynna Bændasamtökunum svörin þegar þau liggja fyrir. Þá segir í bréfinu að samningsmarkmið Íslands verði sett og kynnt á síðari stigum málsins og haft samráð við Bændasamtökin og aðra hagsmunaaðila þegar þar að kemur," segir í tilkynningunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×