Les textann við Reyndu aftur 24. september 2009 06:00 Leikarinn les upp textann við lagið Reyndu aftur á nýrri plötu Buffsins með lögum Magga Eiríks. fréttablaðið/hörður „
Þetta var alveg rosalega gaman,“ segir leikarinn Ingvar E. Sigurðsson sem les upp textann við slagarann Reyndu aftur á væntanlegri plötu Buffsins með lögum Magga Eiríks. „Ég gerði nokkrar útgáfur af þessu, bæði án undirleiks og síðan með undirleik. Ég veit ekki hvað verður notað,“ segir Ingvar, sem er mikill aðdáandi Magga Eiríks. „Maður ólst upp við tónlistina hans. Hún dundi í útvarpinu þegar maður var lítill og maður er undir áhrifum frá þessum mikla snillingi.“ Þótt Ingvar sé á meðal færustu leikara þjóðarinnar hefur hann einnig getið sér gott orð sem söngvari í hinum ýmsu söngleikjum. Hann segist hafa íhugað að bresta í söng í lok lestrarins en hætt við á síðustu stundu. „Þó ég segi sjálfur frá þá er ég alveg prýðilegur söngvari, enda sungið í nokkrum söngleikjum og stundum troðið upp en ég er ekkert að stela sviðsljósinu frá Buffinu,“ segir hann og hlær. Hannes Friðbjarnarson úr Buffinu segir að Maggi Eiríks sé aðdáandi Ingvars og því hafi verið haft samband við hann. „Þetta kemur skemmtilega út og platan í heild sinni er bara frábær,“ segir Hannes. Reyndu aftur er eitt vinsælasta lag Magga Eiríks og því ákvað Buffið að gera einnig hefðbundna útgáfu af því. „Við tímdum ekki að hafa lagið bara svona. Við tökum það líka sjálfir þannig að það kemur tvisvar fyrir á plötunni.“ Platan kemur út 10. október, eða sama dag og ævisaga Magga Eiríks, Reyndu aftur, sem Tómas Hermannsson hjá Sögum ritar. Á útgáfudaginn verða haldnir stórtónleikar í KA-heimilinu á Akureyri þar sem fram koma Mannakorn ásamt Ellen Kristjánsdóttur og Buffinu. - fb
Mest lesið Rassaumhirða karla í sókn Lífið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Pissaði fyrir framan fólk í sjö klukkutíma á dag Menning Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira