Innlent

Ákvörðun Seðlabankans kemur ekki óvart

Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, segir það vera vonbrigði að Seðlabankinn hafi ekki tilkynnt um lækkun stýrivaxta í morgun. Að sama skapi komi sú ákvörðun ekki á óvart því bankinn vinni náið með Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem leggi ekki áherslu á lækkun stýrivaxta heldur að gjaldeyrishöftum verði aflétt. Ekki sé hægt að gera hvoru tveggja. Eygló bendir á að ríkisstjórn Geirs Haarde og Seðlabankinn hafi komið á gjaldeyrishöftum.

Jafnframt segir Eygló í pistli á heimasíðu sinni að til að tryggja stöðugleika í Asíukreppunni hafi Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn keyrt upp stýrivexti frekar en að innleiða gjaldeyrishöft. Afleiðingarnar hafi verið hræðilegar fyrir almenning og fyrirtæki.

Þá segir þingmaðurinn: „Joseph Stiglitz, einn harðasti gagnrýnandi AGS, fagnaði því einmitt að sjóðurinn hefði nú lært af reynslunni í Asíu og innleitt gjaldeyrishöft hér samhliða hærri stýrivöxtum. Einhver gleymdi hins vegar að segja honum að gjaldeyrishöftin voru innleidd að frumkvæði þáverandi ríkisstjórnar og Seðlabankans, ekki AGS.“


Tengdar fréttir

Óbreyttir stýrivextir hjá Seðlabankanum

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að vextir lána gegn veði verði áfram 12% og vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana verði áfram 9,5%, en að daglánavextir lækki úr 16% í 14,5%.

Stýrivaxtaákvörðunin vonbrigði

„Ég verð að segja að þetta kemur ekki á óvart en um leið eru þetta vonbrigði," segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um ákvörðun Seðlabanka Íslands um að halda stýrivöxtum óbreyttum í 12 prósentum.

Seðlabankinn herðir snöruna

Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segist hættur að skilja vaxtastefnu Seðlabanka Íslands. Peningastefnunefnd bankans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum en þeir eru 12%. „Við erum búin að segja mánuðum saman að það sé ekki hægt að búa við þetta vaxtastig. Með þessu er snaran hert hægt að rólega að fyrirtækjum og heimilum í landinu.“

Ólafur Ísleifsson segir hlutverk stýrivaxta orðið óljóst

Ólafur Ísleifsson lektor við Háskólann í Reykjavík segir að hlutverk stýrivaxta í íslenska hagkerfinu sé orðið óljóst. „Í núverandi gjaldeyris- og peningakerfi sem gengur út á að styðja gengi krónunnar með höftum gegna stýrivextir aukahlutverki,“ segir Ólafur.

Seðlabankinn framlengir kreppuna

„Ég lít svo á að Seðlabankinn sé að ögra aðilum stöðuleikasáttmálans með þessari ákvörðun,“ segir Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins um ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands að halda stýrivöxtum óbreyttum. Hann segir að með ákvörðun sinni sé bankinn að framlengja kreppuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×