Hænan tekur við af egginu 24. september 2009 06:00 Björn Bragi Arnarsson er nýr ritstjóri tímaritsins Mónitors. Hann hlakkar til að taka við keflinu og hefja störf. fréttablaðið/Vilhelm
Björn Bragi Arnarsson hefur verið ráðinn nýr ritstjóri tímaritsins Mónitors, en Atli Fannar Bjarkason var ritstjóri þess. Björn Bragi segist ánægður með nýja starfið, enda sé Mónitor vel heppnað og skemmtilegt blað. „Ég er svo nýbyrjaður að ég er ennþá bara í undirbúningsvinnu, en mér líst vel á þetta og held að þetta verði spennandi áskorun,“ segir Björn Bragi. Aðspurður segir hann Mónitor hafa náð góðum árangri undir stjórn Atla Fannars en hann kvíði því þó ekki að feta í fótspor hans. „Ég kenndi náttúrlega Atla allt sem hann kann þegar við unnum saman á Blaðinu og 24 stundum á sínum tíma. Hann gerði góða hluti á meðan hann stýrði Mónitor og ég mun halda áfram með það og taka það aðeins lengra. Það er ýmislegt sem við erum að pæla í og skoða og ég vil til dæmis efla vefinn og setja meira fútt í hann. Ég stefni einnig á að auka útgáfuna, en hingað til hefur blaðið aðeins komið út fjórum sinnum á ári.“ Fyrsta blaðsins undir stjórn Björns Braga er að vænta í desember og segir hann að væntanlega verði um einhvers konar jólablað að ræða. Þegar Björn Bragi er inntur eftir því hvort hann sé einnig í hljómsveit líkt og forverar hans, Biggi í Maus og Atli Fannar, sem var forsprakki Haltrar hóru, segir hann svo vera. „Ég er í dauðapopphljómsveitinni Rokksonur. Þetta er ný hljómsveit og ný tónlistarstefna sem heimurinn fær að heyra þegar hann er tilbúinn til þess. Sveitin spilar popplög með hráum textum sem koma aftan að fólki og ég er söngvari og gítarleikari þessarar ágætu hljómsveitar.“ - sm
Mest lesið Mildari og þolinmæðari við sjálfa sig eftir greininguna Lífið Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Lífið Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Lífið Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Lífið Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Bíó og sjónvarp Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Lífið „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ Lífið Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð Lífið Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Lífið Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Lífið Fleiri fréttir Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmæðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Leitaði upprunans og fékk óvænta frænku í heimsókn Páll Edwald og Selma Eir trúlofuð „Er ég að klikka strax í 50?“ „Maður þarf að gera alla hluti upp“ Umdeildi brautryðjandinn Afrika Bambaataa allur Lærði að lifa lífinu upp á nýtt eftir alvarleg veikindi Sjarmatröllið sem setti popptónlist í öndvegi Halla gerir undantekningu vegna andlátsins Það er komið gó hjá Bó Svala minnist pabba síns Tekur við af dóttur kærastans Lifir með sjúkdóminum en lætur ekkert stöðva sig Skilnaður foreldranna mótað hana einna mest Hórdómur vinsældanna: Núll stjörnur Hvað veistu um… styttur í Reykjavík? Söfnuðu kleinuhringjum ofan í fötu með skrautlegri aðferð Algengur misskilningur að hávært fólk sé með mesta sjálfstraustið The Streets koma fram á Iceland Airwaves „Það er enginn að fara senda þig í stríð“ Aflýsa Wireless eftir að Kanye var meinað að fara til Bretlands Mos Def kemur fram í Gamla Bíó í maí Eftir á fyndið að vera stönguð niður af kind Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Sjá meira