Innlent

Fer á tölvuleikjaráðstefnu í Málmey

Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jakobsdóttir menntamála- og samstarfsráðherra setur norrænu tölvuleikjaráðstefnuna Nordic Game 2009 í Málmey á morgun. Hún mun jafnframt veita þar styrki að jafnvirði þriggja milljóna danskra króna sem renna munu til sex nýrra tölvuleikjaverkefna.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurlandaskrifstofu í dag. Þar segir ennfremur að íslendingar hafi hrint Norrænu tölvuleikjaáætluninni úr vör á árinu 2004 þegar þeir fóru síðast með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni.

Verkefnið þykir hafa heppnast með miklum ágætum og hefur ráðstefnan Nordic Game nú unnið sér sess sem helsti vettvangur tölvuleikjahönnuða í heiminum.

Á ráðstefnunni munu margir heimsþekktir leikjahönnuðir og áhrifamenn í tölvuleikjaiðnaði flytja erindi og skemmta gestum. Meðal þeirra er Suda 51, einn af þekktustu leikjahönnuðum Japans, sem m.a. hannaði No More Heroes sem hlotið hefur einróma lof gagnrýnenda.

Markmið Nordic Game er ekki síst að kynna norræna tölvuleikjaframleiðendur. Meðal þeirra sem kynna framleiðslu sína er íslenska fyrirtækið CCP sem framleiðir Eve Online.

Á Nordic Game verður einnig besti norræni tölvuleikurinn verðlaunaður og haldinn verður framadagur fyrir nemendur í skapandi greinum á sýningarsvæðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×