Íslensk stelpa opnar hönnunarbúð í Köben 24. september 2009 06:00 Mums filibaba Guðbjörg Reykjalín hefur verið búsett í Danmörku frá tólf ára aldri. Hún rekur nú hönnunarverslunina Mums Filibaba í miðbæ Kaupmannahafnar.
Fatahönnuðurinn Guðbjörg Reykjalín hefur opnað hönnunar- og listabúð í rólegri hliðargötu í miðbæ Kaupmannahafnar. Verslunin ber nafnið Mums Filibaba og selur flíkur frá upprennandi hönnuðum, skemmtilega hluti fyrir heimilið, listaverk og ljósmyndir frá ýmsum listamönnum auk alls konar fylgihluta. Guðbjörg hefur verið búsett í Danmörku frá tólf ára aldri og útskrifaðist sem fatahönnuður frá Håndarbejdets Fremmes Seminarium árið 2005. „Ég flutti til Kaupmannahafnar árið 1992 og kalla þetta mína heimaborg. Mamma mín flutti fyrir stuttu aftur heim til Íslands en ég reikna með að ég dvelji áfram hér í Danmörku. Mér finnst þó alltaf gott að koma heim til Íslands og hlaða batteríin, eins er hönnun mín undir miklum áhrifum frá íslenskri náttúru,“ segir Guðbjörg, en hún hannar flíkur undir nafninu Greykjalín. Mums Filibaba opnaði formlega 9. september síðastliðinn og segist Guðbjörg hafa fengið góðar móttökur frá viðskiptavinum. Spurð út í nafnið á versluninni segir hún að það vera danskt orðtak. „Danir nota þetta yfir hluti sem þeim þykja afskaplega góðir, „mums“ þýðir í rauninni bara namm. Okkur fannst þetta tilvalið nafn á versluninni því það gefur til kynna að hér séu til sölu afskaplega góðar vörur,“ segir Guðbjörg. Til stendur að opna vefverslun á slóðinni www.mumsfilibaba.dk, þar gefst fólki kostur á að skoða og kaupa þær vörur sem seldar eru í búðinni og fá sendar hingað heim til Íslands. - sm
Mest lesið Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Gagnrýni Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Lífið Kampakát yfir kampavíni og kavíar Lífið Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn Tíska og hönnun Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Bíó og sjónvarp Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Lífið Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Menning Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Lífið Fleiri fréttir Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti Sjá meira