Stjórn UVG: Spurning hvort lög flokksins hafi verið brotin 13. maí 2009 12:57 Steinunn Rögnvaldsdóttir, formaður UVG.
Stjórn Ungra vinstri grænna lýsir megnri óánægju með að ekki skuli vera jafnt hlutfall kynja í ráðherraliði nýrrar ríkisstjórnar. Í tilkynningu frá stjórninni er sett fram sú krafa að þegar næst verði gerðar breytingar á skipan ráðherra í ríkisstjórninni verði hlutfall kynjanna innan hennar leiðrétt, enda sé slíkt í samræmi við samþykktir Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Þá telur stjórnin að spurningar vakni hvort forysta flokksins hafi gerst brotleg við lög flokksins þegar fleiri karlar en konur voru skipaðir ráðherrar. Þrír karlar og tvær konur skipa ráðherralið VG, líkt og hjá Samfylkingunni. „Stjórn Ungra vinstri grænna vekur athygli á að hlutfall kynjanna í þingflokkum Vinstri grænna og Samfylkingar er jafnt, að stjórnarflokkarnir sóttu fylgi sitt ekki síst til kvenna, og að það eru um það bil jafn margar konur og karlar hluti af þessari þjóð," segir ennfremur. „Það að taka þátt í ríkisstjórn þar sem að kynjahlutföll eru ójöfn og báðir flokkar skipa fleiri karla en konur ráðherra, er að svíkjast undan merkjum kvenfrelsisstefnu Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs sem að felur í sér að ætíð eigi að gæta að jafnrétti kynjanna, í stöðuveitingum sem öðru." Þá segir að Stjórn Ungra vinstri grænna sé mjög undrandi og vonsvikin yfir því að ályktun flokksráðs sem fól í sér að formanni flokksins væri falið að tryggja jafnt kynjahlutfall innan ríkisstjórnarinnar, hafi greinilega verið hunsuð við ríkisstjórnarmyndun. „Stjórnin telur þetta vekja spurningar um brot á lögum flokksins, en þar kemur fram að flokksráð er æðsta ákvörðunarvald flokksins á milli landsfunda. Að ganga framhjá bæði stefnu og ályktunum sem æðstu stofnanir flokksins hafa samþykkt er afar ólýðræðislegt og forystu flokksins til vansa." „Stjórn Ungra vinstri grænna gerir þá kröfu til forystu flokks síns að á þessu verði ráðin bragabót. Það er ljóst að aðferðir sem þessar eru einungis til þess fallnar að rýra traust kjósenda, og flokksmanna sjálfra á flokknum. Stjórn Ungra vinstri grænna harmar þessa niðurstöðu sem er aðför að feminískum og lýðræðislegum gildum þeirrar hreyfingar sem að við kusum að greiða atkvæði okkar í síðustu kosningum."
Mest lesið Hvað segja veðbankarnir? Innlent Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Lífið Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent Fleiri fréttir Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Sjá meira