Þarf að byggja upp fjölskyldu í kvikmyndabransanum 22. júlí 2009 06:45 vinna saman Dögg Mósesdóttir ásamt spænskum vini sínum, Lucas Laujedo, sem fer með aðalhlutverkið í stuttmyndinni.Fréttablaðið/stefán
Tökur á nýrri stuttmynd í leikstjórn Daggar Mósesdóttur hefjast von bráðar. Stuttmyndin sem um ræðir er ferðasaga og verður tekin upp á Snæfellsnesi, í Flatey og að hluta til á Brjánslæk og er handritið einnig skrifað af Dögg. „Sagan fjallar um sígauna sem kemur til Íslands til að selja gagnslausar uppfinningar því hann hafði heyrt að hér keypti fólk hvað sem væri. Ung stúlka verður á vegi hans og þegar líður á myndina kemur í ljós að hún hefur strokið að heiman og skilið eftir sig blóði drifna slóð, ef svo má að orði komast,“ segir Dögg Mósesdóttir um nýja stuttmynd sína sem tekin verður innan tíðar. Spænskur vinur Daggar fer með hlutverk sígaunans og með hlutverk strokustúlkunnar fer ung söngkona frá heimabæ Daggar, Grundarfirði. Þetta er níunda stuttmynd Daggar og jafnframt sú lengsta sem hún hefur gert hingað til og er hún öll tekin upp á Super 8 myndavél. „Ég ákvað að taka myndina upp á svona vél þar sem mér finnst skemmtileg áferð koma af þeim. Við erum komin með tvær svona Super 8 vélar, þannig ef ein bilar þá erum við með aðra til öryggis. Það er til fullt af þessum myndavélum út um allt, en mjög fáar sem virka og það getur verið erfitt að stilla hljóðið við myndina, en ég er bara svo veik fyrir áferðinni sem kemur af þessu.“ Aðspurð segist Dögg hafa fengið tíu manna tökulið með sér og er þetta í fyrsta sinn sem hún vinnur með alíslensku tökuliði. „Ég hef mikið verið að vinna með skólafélögum mínum frá Spáni, en tökuliðið við þessa mynd er allt íslenskt. Ég var svolítið smeyk um að ég mundi hætta að vinna við kvikmyndir þegar ég kæmi heim frá Spáni þar sem allt fólkið mitt var úti. Maður þarf að byggja upp hálfgerða fjölskyldu í þessum bransa, ég hafði það úti, sem betur fer tókst mér að gera það í kringum þessa stuttmynd. Þegar maður vinnur með svona góðu fólki þá þarf maður ekki að reiða sig jafn mikið á fjármagn og er einhvern veginn frjálsari í listsköpuninni,“ segir Dögg. Aðspurð segist hún ekki viss um hvenær myndin komi fyrir sjónir almennings þar sem hún hafi aðeins haft efni á að kaupa filmu í vélina en hafi enn sem komið er ekki fjármagn til að framkalla hana. „Vonandi kemst hún einhvern tíma í sýningu,“ segir Dögg að lokum hlæjandi. sara@frettabladid.is
Mest lesið „Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Lífið „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Lífið Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón Lífið Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Lífið Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn Lífið Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Lífið Ljósbrot tilnefnd til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Menning Krakkatía vikunnar: Strumparnir, borgarstjórar og tónlist Lífið Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Lífið Valdi hættur að spila í neðri deildunum Lífið Fleiri fréttir Annie Mist á von á þriðja barninu Stjörnulífið: Skúli og Gríma orðin hjón „Ég hef verið mikill kvíðasjúklingur alveg síðan ég var barn“ Maðurinn sem Pink Floyd kveikti í er látinn „Maður getur þakkað íslenskum bókmenntum fyrir H.C. Andersen“ Krakkatía vikunnar: Strumparnir, borgarstjórar og tónlist Eldri menn hlógu þegar hún sótti um vinnu Sannfærð um að hún myndi aldrei geta átt gott líf Fréttatía vikunnar: Þýskaland, hetja og kaffihús Forsetahjónin létu sig ekki vanta Uppskrift að hinu fullkomna vinkonukvöldi Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Þorsteinn og Rós orðin hjón Fagna aldarfjórðungsafmæli Ylstrandarinnar á morgun Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Bieber fékk sér smók í Skagafirði Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Cruise afþakkaði boð Trump Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Heillandi arkitektúr í Garðabæ Valdi hættur að spila í neðri deildunum Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Sjá meira