Innlent

Krónubréf nánast horfin

„Mest af krónubréfunum er í raun og veru horfið, því bréfin sjálf voru komin á gjalddaga og þá voru þau bara greidd upp," sagði Gylfi Magnússon á blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar í gær.

„Krónubréfin sjálf eru því ekki svo mikið áhyggjuefni." Gylfi benti á að eitthvað af krónubréfum sé enn útistandandi, en það séu mun lægri upphæðir en þegar mest var.

„Vandinn er mun frekar sá að útlendingar eiga innstæður í íslenskum bönkum, ríkisskuldabréf, skuldabréf íbúðalánasjóðs og aðrar slíkar eignir. Gjaldeyrishöftunum var öðrum þræði ætlað að tryggja að þeir færu ekki með það fé of hratt úr landi," sagði Gylfi.- ss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×