Friðrik Ómar eini viðskiptavinur Jógvans 8. október 2009 03:45 Hárgreiðslumaður í heimsendingu Jógvan mundar sig við að lita hárið á Friðriki og klippa fyrir landsbyggðarferð þeirra félaga. Fréttablaðið/Stefán „
Friðrik er eini viðskiptavinurinn enda er ég hættur í bili með skærin," segir Jógvan Hansen, fyrrverandi hárgreiðslumaður. Hann stundar nú nám við Keili, háskólann í Reykjanesbæ, á félagsfræðibraut og hefur tekið sér ársleyfi frá hárskerðingum og litun. Samstarfsmaður hans í tónlistinni, Friðrik Ómar, nýtur hins vegar þess heiðurs að vera eini viðskiptavinur Jógvans. Þeir félagar eru á leiðinni norður á land í dag, spila á Græna hattinum í kvöld og svo á Dalvík á morgun. Litun og klipping heima hjá Friðriki er liður í undirbúninginum. „Ég sé um kaffið og hann „sjænar" á mér hárið," segir Friðrik en þeir félagar kynntust einmitt þegar Friðrik tók að venja komur sínar á hárgreiðslustofu Jógvans. Færeyingurinn og Birna á Akureyri eru þau einu sem fá að hafa hendur í hári Eurovision-stjörnunnar. Samstarf þeirra Friðriks og Jógvans er nú að geta af sér plötu. Þar syngur Jógvan íslensk dægurlög á færeysku og Friðrik færeysk lög á íslensku. Þeir félagar hyggjast leggja land undir fót síðar í þessum mánuði, með fimm manna hljómsveit og leika lög af þessari plötu. Friðrik Ómar kveðst vera spenntur fyrir því að koma til Færeyja, þangað hafi hann aldrei komið áður. „Nei, býr ekki þarna hið vænsta fólk? Þeir lánuðu okkur allavega fyrstir pening eftir 6. október," segir Friðrik. Jógvan unir hag sínum vel í Reykjanesbæ þar sem hann býr ásamt konu sinni en hún er stærðfræðikennari. Hann segir hátt bensínsverð hafa gert gæfumuninn í þeirri ákvörðun sinni að leggja hárgreiðsludótið á hilluna í bili. „Já, það er ekkert sérstaklega hagstætt að keyra milli Reykjanesbæjar og Reykjavíkur þrisvar í viku."- fgg
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno Bíó og sjónvarp Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Fleiri fréttir Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Sjá meira