Innlent

Hætta á að börn í efnahagslegum erfiðleikum neyti fíkniefna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Lögreglumaður við störf. Börn sem upplifa efnahagslega erfiðleika eiga hættu á að lenda í ofbeldi, afbrotum og fíkniefnaneyslu. Mynd/ Anton.
Lögreglumaður við störf. Börn sem upplifa efnahagslega erfiðleika eiga hættu á að lenda í ofbeldi, afbrotum og fíkniefnaneyslu. Mynd/ Anton.

Efnahagslegir erfiðleikar á heimilum ungmenna eru áhættuþáttur fyrir margvísleg vandamál sem þau glíma við. Þetta segir Jón Gunnars Bernburg, dósent í félagsfræði við Háskóla Íslands. „Þeim líður verr, eru reiðari, eru meira í ofbeldi og afbrotum og fíkniefnaneyslu. Þetta er skýrt mynstur," segir Jón Gunnar.

Jón Gunnar rannsakaði áhrif efnahagsaðstæðna á áhættuhegðun ungmenna ásamt Þórólfi Þórlindssyni, prófessor í félagsfræði við HÍ, og Ingu Dóru Sigfúsdóttur, prófessor við HR. Gögnum var safnað með spurningalistakönnun á ungmennum af landinu öllu árið 2006. Jón Gunnar ræddi svo niðurstöður rannsóknarinnar á fundi Félagsfræðingafélags Íslands í síðustu viku.

Jón Gunnar segir að niðurstöður rannsóknarinnar bendi jafnframt til þess að efnahagslegir erfiðleikar smiti út frá sér. Þetta þýði að krakkar sem búi í hverfum þar sem efnahagslegir erfiðleikar eru algengir séu líklegri til þess að glíma við félagsleg vandamál og til að sýna andfélagslega hegðun. Jón Gunnar segir að líkleg skýring á þessu sé að börn og unglingar verði fyrir áhrifum af jafnöldrum sínum.

Jón Gunnar segir að í þriðja lagi hafi komið í ljós að efnahagslegir erfiðleikar snúist ekki einungis um skort á veraldlegum gæðum heldur einnig um félagslegan samanburð. Ungmenni beri sig sem sagt saman við hvert annað. Það sé vont að búa við efnahagslega erfiðleika, en enn verra að búa við efnahagslega erfiðleika þegar þeir sem maður ber sig saman við hafa það mun betra en maður sjálfur.

Jón Gunnar bendir á að gögnum í þessari rannsókn hafi verið safnað árið 2006, löngu áður en bankahrunið skall á. Hann segist hins vegar vita til þess að verið sé að stefna að gagnasöfnun til þess að hægt sé að rannsaka áhrif þeirra aðstæðna, sem samfélagið stendur frammi fyrir núna, á ungmenni.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×