Innlent

Slökkviliðsdeila í Árborg: Öryggi íbúa tryggt

Margrét K. Erlingsdóttir
Margrét K. Erlingsdóttir

Margrét K. Erlingsdóttir formaður Brunavarna Árborgar segir að öryggi íbúa sé tryggt þrátt fyrir að fimmtán slökkviliðsmenn hafi sagt upp störfum, en þeir munu hætta um næstu mánaðarmót. Nokkuð harðvítugar deilur hafa staðið milli slökkvliðsmannanna og yfirstjórnar en þeir sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem skorað er á stjórnina og slökkviliðsstjórann að segja af sér. Deilan snýst, samkvæmt ályktun þeirra, um samskiptaörðugleika og trúnaðarbrest.

Í yfirlýsingu frá Margréti er slökkviliðsmönnunum svarað fullum hálsi og út úr henni má lesa að ekki verði orðið við áskorun þeirra. Þar segir meðal annars að slökkviliðsstjórinn hafi ekki brotið af sér í starfi eða farið út fyrir samþykktir stjórnar.

„Stjórn og fulltrúaráð eru kjörin af sveitarfélögum sem eru eigendur BÁ og hafa þau ekki lýst neinu vantrausti á okkar störf. Það er aldrei einum að kenna er tveir deila, mál sem þessi eru innanhúsmál sem auðvelt er að leysa ef báðir aðilar vinna að þeim," segir í yfirlýsingunni frá Margréti.

Þá kemur einnig fram að BÁ hafi auglýst eftir starfsmönnum í stað þeirra sem ákveðið hafa að hverfa til annarra starfa og hafa borist á annan tug umsókna en nýir slökkviliðsmenn verða ráðnir, þjálfaðir og menntaðir í samstarfi við Brunamálastofnun sem hefur boðið fram aðstoð síðan.

„Meðan á þjálfun stendur verður sett upp öryggisáætlun með núverandi slökkviliði sem og slökkviliðum í nærsveitum og á höfuðborgarsvæðinu. Undirbúningur að þessari áætlun er þegar hafinn og mun öryggi íbúa verða tryggt."

Þá segir að það sé mikil einföldun að setja fram þá kröfu sem starfsmaður að maður ætli að hætta störfum ef yfirmaður manns verður ekki rekinn.

„Það einfaldlega virkar ekki þannig í fyrirtækjum og stofnunum. Maður velur sér starfsvettvang af fúsum og frjálsum vilja, ef manni líkar ekki sú yfirstjórn sem þar er getur maður valið að hætta. En það er með eindæmum að menn skuli telja það nauðsynlegt að ráðast með þessum hætti að vinnustaðnum í stað þess að hverfa til annarra starfa."

Hægt er að sjá Yfirlýsinguna í heild sinni hér að neðan.


Tengdar fréttir

Slökkviliðsdeila: Formaður vill ekki tjá sig

„Ég vil ekki tjá mig um málið því ég er ekki búin að lesa yfirlýsinguna," svarar Framsóknarkonan Margrét K. Erlingsdóttir og formaður Brunavarna Áborgar um harðvítuga deilu slökkviliðsmanna í Árborg við stjórnina og slökkviliðsstjóra. Alls hafa fimmtán slökkviliðsmenn sagt upp störfum og munu þeir láta af störfum nú um næstu mánaðarmót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×