Innlent

400 þúsund króna ríkisstjórnarfundur

Ríkisstjórnarfundurinn á Akureyri hefur líklega kostað um fjögur hundruð þúsund krónu

Í ljósi þess að ríkisstjórnin ætlar samkvæmt nýjum stjórnarsáttmála að efna til sparnaðarátaks í ríkiskerfinu og skera niður ferðakostnað hefur fréttastofa í dag freistað þess að meta aukakostnað af þessum ríkisstjórnarfundi á Akureyri í dag. Eftir því sem næst verður komist fóru þrettán manns, ellefu ráðherrar og tveir starfsmenn, með áætlunarflugi vegna fundarins - í þremur hollum í öryggisskyni að tilmælum Almannavarnarráðs.

Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er ekki óvarlegt að áætla að flug fram og til baka kosti um 25 þúsund krónur með afslætti, sem gera þá samtals 325 þúsund krónur fyrir alla. Ekki er vitað til þess að stjórnvöld hafi þurft að greiða fyrir afnot af húsnæði á Akureyri en að minnsta kosti tveir ráðherrar gistu á hóteli - líklega fleiri, þar sem fyrsta hollið fór í gær. Því má ætla að aukakostnaður vegna þessa fundar sé um 400 þúsund krónur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×