Missti vinnuna og opnaði líkamsræktarstöð 5. nóvember 2009 06:00 KOmin í draumastarfið Elísabet Tanía opnaði Studio Fitt eftir að hafa misst vinnuna í kjölfar kreppunnar. Hún segist nú vera komin í draumastarfið. Fréttablaðið/anton „
Mér og samstarfskonu minni datt þetta í hug þegar við vorum að vinna saman því við höfðum báðar mikinn áhuga á líkamsrækt. Þegar kreppan skall á misstum við báðar vinnuna og í stað þess að sitja aðgerðarlausar heima ákváðum við að opna okkar eigin líkamsræktarstöð. Við opnuðum Studio Fitt saman í janúar en hin flutti út í sumar og nú er ég ein eftir ásamt tveimur þjálfurum,“ segir Elísabet Tanía Smáradóttir, viðskiptafræðingur og Fit Pilates kennari sem rekur líkamsræktarstöðina Studio Fitt við Seljaveg. Stöðin býður meðal annars upp á tíma í Fit Pilates, boot camp fyrir konur og jóga, svo fátt eitt sé nefnt. Elísabet Tanía tók á leigu húsið á Seljavegi sem áður hýsti Sjúkraþjálfun Reykjavíkur og fékk aðstoð frá vinum og vandamönnum við endurbætur á húsnæðinu. „Við reyndum að gera þetta á eins ódýran máta og við mögulega gátum og fengum því aðstoð frá vinum og vandamönnum við að koma húsnæðinu í stand. Við þurftum að rífa niður nokkra veggi og byggja aðra, pússa gólfin og koma upp betri sturtuaðstöðu og í kjölfarið þykir manni enn vænna um staðinn.“ Hún kennir daglega í Studio Fitt en hefur fengið tvo aðra þjálfara til liðs við sig. „Ég kenni ekki morgun- eða kvöldtímana því ég á lítið barn sem þarf svolítið á mömmu sinni að halda.“ Aðspurð segist Elísabet Tanía hafa æft ýmsar íþróttir frá barnsaldri og segir hún íþróttaiðkun vera henni jafn nauðsynlega og súrefni. „Í gegnum árin hef ég lesið nánast allt sem viðkemur næringarfræði, líkamsrækt og heilsu. Þess utan hef ég tekið ýmis þjálfararéttindi, þannig að ég er án efa komin í draumastarfið,“ segir hún og hlær. - sm
Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Danny Glover með Alzheimer Bíó og sjónvarp Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Mormónastjarna kemur út úr skápnum Fann ástina og tók sénsinn í New York Lést af völdum alnæmis Alþjóðlegi drullumallsdagurinn: „Við viljum ekki fara heim af því að það er svo skemmtilegt“ Fjarlægður úr Love Island vegna tengsla sinna við stunguárás „Þetta eru pjöllu-klútar“ Kanada getur nú tekið þátt í Eurovision Syntu í tæpa þrettán tíma með höfrungum og hákörlum Segist ekki hafa viljað láta kenna sig við Zuckerberg Stjörnulífið: Sleikur við austurrískan leðurpervert „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Harry og Meghan fá ekki lögregluvernd „Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“ „Í mínum huga var þessi dagur fullkominn“ Krakkatía vikunnar: Margur verður af aurum api Sambandi Cox og McDaid lokið Ógleymanlegt kvöld í alla staði Sálin kom saman í fyrsta sinn í rúman áratug Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim Sjá meira