Tveir rauðhærðir keyra hringinn á íslensku metani 22. júlí 2009 06:00 sögulegur leiðangur um hringveginn Þá Ómar og Einar mun ekki skorta umræðuefnin á hinni löngu leið, Ómar er lexíkon í íþróttasögunni og Vilhjálmur Einarsson, faðir Einars, er einmitt silfurhafi frá Ólympíuleikunum í Melbourne 1956. fréttablaðið/gva
Á föstudagsmorgun hefst sögulegur leiðangur. Þá fara þeir Ómar Ragnarsson fréttamaður og Einar Vilhjálmsson spjótkastari fyrstir hringinn á íslensku eldsneyti. „Ég þekki pabba hans og þetta er allt í lagi. Það er mér nóg. Þetta er ljúfur drengur. Mér líkar vel við hann,“ segir Ómar spurður hvernig það leggist í hann að sitja svo langa leið, eða í tvo sólarhringa, með Einari í bíl. Ferðin er á vegum Metan hf., þar sem Einar er markaðsstjóri, og N1 og er farin til að vekja athygli á því að metanbílar eru umhverfisvænir. Metan er framleitt á sorphaugunum og er þar því um að ræða gufur sem færu að öðrum kosti ónýttar út í andrúmsloftið. Og metan kostar ekki gjaldeyri. Þarna er því um sjálfbæra orku að ræða. Bíllinn sem þeir fara á, rauðhærðu félagarnir, er Ford pickup – sem nemendur í Borgarholtsskóla tóku að sér að breyta. Ómar segist ekki vita hverju hann eyðir á hundraðið enda sé það ekki málið. Heldur að þetta sé íslenskt eldsneyti. „Þetta markar tímamót. Og lítið skref í stóra átt. Það er þetta sem er hið stórkostlega við framtíð landsins. Sjálfbærni eldsneytis. Ef við látum ekki álhringana fá alla orkuna okkar,“ segir Ómar fjallhress að vanda. Ómar mun sitja undir stýri – Einar fær ekkert að keyra. „Nei, ég á víst að taka það verkefni að mér. Sem mikill ferðahundur og gamall rallari.“ Ómar, sem þekktur er fyrir það á undanförnum árum að aka aðeins á mjög litlum bílum, þeim sem eyða minnstu eldsneyti, segir að það verði ekkert mál að aka þetta stórum bíl. „Hann þarf að vera svona stór því við verðum sennilega fjögur í bílnum. Ætli konurnar okkar komi ekki með að einhverjum hluta. Jú, jú, ég er vanur að keyra allar stærðir. Keyrði í gamla daga stóran vörubíl með miklum hlössum, tvíkúplaði og gerði allar kúnstir sem þurfti með slíka bíla. En það eru til allar gerðir af metanbílum.“ Félagarnir fara fyrst norður fyrir, gista á Akureyri, og munu snæða á N1-bensínstöðvum á leiðinni. Ómari hrýs ekki hugur við einhæfu mataræðinu enda verður Cheerios-pakki í aftursætinu – eftirlætisfæða Ómars þegar hann er á ferðinni. Hann var akkúrat að fá sér SS-pylsu, tvöfalda í brauði, þegar blaðamaður heyrði í honum. „Þetta er ágætis matur.“ Metanbíll Ómars og Einars verður fylltur á bensínstöð N1 á Ártúnshöfða í upphafi ferðar en þangað liggur rör beint frá sorphaugunum – eini eldsneytisstaðurinn í víðri veröld sem fær eldsneytið beint af sorphaugunum, beint af kúnni ef svo má að orði komast. Þá er meiningin að taka hús á föður Einars, Vilhjálmi Einarssyni, fyrrverandi skólastjóra og silfurverðlaunahafa í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne 1956. Þannig að þá Ómar og Einar mun ekki skorta umræðuefni á langri leið en Ómar er lexíkon í íþróttasögunni. „Já, eða allri eldri gerðinni af henni.“ jakob@frettabladid.is
Mest lesið Hætt saman en ennþá vinir Lífið Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Lífið Þreföld útgáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“ Tónlist Madonna með heitustu dansmynd ársins Tónlist Þorgerður Katrín og Sólveig Anna í þrumustuði í Þulu Menning Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Lífið Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lífið Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Enginn venjulegur sjötugur maður Gagnrýni Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Lífið Fleiri fréttir Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ Sjá meira